Fótbolti

„Þetta er örugglega með verstu dögum lífs míns“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir
Sveindís Jane Jónsdóttir Vísir/Vilhelm

Sveindís Jane Jónsdóttir kveðst hafa verið bæði reið og sár eftir 4-1 tap Íslands fyrir Portúgal í umspili um HM-sæti í Portúgal í kvöld. Margar tilfinningar láti á sér kræla sem fæstar séu jákvæðar.

„Ég get ekki lýst því. Ég held að við séu bara mjög margar tilfinningar, allar slæmar. Þetta er örugglega með verstu dögum lífs míns, ég get bara ekki lýst þessu,“ segir Sveindís Jane um tilfinningarnar eftir leik.

Dómarinn Stéphanie Frappart frá Frakklandi tók umdeildar ákvarðanir sem höfðu mikið að segja. Hún dæmdi mark af Íslandi snemma í síðari hálfleik og gaf Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur rautt spjald þegar hún gaf Portúgal vítaspyrnu skömmu seinna. Sveindís segir ákvarðanir dómarans hafa verið slakar.

„Það er náttúrulega alltaf hægt að fara beint í dómgæsluna en í þessum leik var þetta eiginlega bara skelfilegt, það er ekkert annað hægt að segja. Ég er ekki búin að sjá atvikin aftur en mér fannst þetta bara út í hött. Ég skil ekki af hverju við fáum rautt spjald þarna, víti okei, en rautt spjald er svolítið mikið. Ég veit ekki hvað gerist í markinu sem við skorum snemma í seinni hálfleik sem var dæmt af okkur, ég veit ekki enn hvað var dæmt á,“

„Ég er bara mjög reið og sár,“ segir Sveindís.

Sveindís segir Ísland hafa svarað mótlætinu vel enda jafnaði Glódís Perla Viggósdóttir leikinn skömmu eftir að Portúgal komst yfir úr vítaspyrnunni. Það hafi hins vegar fjarað undan liðinu þegar leið á, enda erfitt að leika 10 gegn 11 til lengri tíma.

„Það var geggjað að fá mark þarna eftir að þær skora úr vítinu. Það tók okkur upp á næsta level og mér fannst við eflast mjög mikið eftir þetta og vera í mjög góðum séns. Ég fæ dauðafæri sem ég á auðvitað bara að klára. Við vorum inni í leiknum allan tímann en eftir að þær skora 2-1 og 3-1 þá er þetta svolítið brött brekka,“ segir Sveindís.

Aðspurð um hvernig hún muni takast á við vonsbrigðin segir Sveindís:

„Góð spurning, ég þarf bara að finna út úr því, ég veit það ekki ennþá. Ég ætla að leyfa mér að vera svekkt í nokkra daga kannski en maður má ekki vera of svekkt því það er náttúrulega tímabil í gangi úti í Þýskalandi. Ég þarf að koma mér upp úr þessu og halda áfram. Lífið heldur áfram og við ætlum bara að taka næsta leik þá,“.


Tengdar fréttir

Þorsteinn Halldórsson: „Þetta er aldrei rautt“

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, var eðlilega súr og svekktur eftir 4-1 tap liðsins gegn Portúgal í framlengdum umspilsleik um laust sæti á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.

Einkunnir Íslands: Glódís Perla stóð upp úr

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 4-1 tap er liðið heimsótti Portúgal í framlengdum umspilsleik um laust sæti á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. Íslenska liðið þurfti að spila stóran hluta leiksins manni færri og hélt út í venjulegum leiktíma, en missti heimakonur fram úr sér í framlengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×