Zerq sigldi sigrinum heim

Snorri Rafn Hallsson skrifar
zerq

Leikurinn fór fram í Inferno þar sem SAGA vann hnífalotuna og byrjaði í vörn. Bjarni kom sprengjunni fyrir af miklu öryggi fyrir NÚ í fyrstu lotunni en einhvern veginn tókst liðinu ekki að tengja saman lotur fyrr en undir lok hálfleiks.

Zerq og félagar í SAGA höfðu því yfirhöndina mest allan hálfleikinn og innsigluðu forskotið með þriggja lotu runu í lok hálfleiks þar sem SAGA hélt sig djúpt á kortinu og hleypti NÚ ekki inn á sprengjusvæðin.

Staða í hálfleik: NÚ 6 – 9 SAGA

Skoon var einn eftir gegn þremur leikmönnum NÚ í skammbyssulotunni en fór létt með að fella þá alla. SAGA-maskínan var komin í gang og vann liðið fyrstu fjórar lotur síðari hálfleiks til að komast í stöðuna 13–6. Liðið fór hratt um kortið, hélt vopnum sínum og sótti beitt.

Undir lokin skiptust liðin á lotum en SAGA hélt forskotinu og vann. Zerq var atkvæðamestur fyrir SAGA með 23 fellur en Skoon var fast á hælana hjá honum með 22. CLVR lauk leik með 21 fellu fyrir NÚ.

Lokastaða: NÚ 9 – 16 SAGA

Með sigrinum er SAGA jöfn NÚ í deildinni og bæði lið með 4 stig eftir tvo sigra og eitt tap. Eftir leikinn sagði DOM, leikmaður SAGA, að það væri góður andi í liðinu. Kortaúrval liðsins hefur breikkað og að liðið myndi standa sig vel gagnvart flestum liðum í deildinni, stefnan sé sett á annað eða þriðja sætið innan skamms.

Næstu leikir liðanna:

  • NÚ – Þór, fimmtudaginn 6/10 klukkan 20:30
  • Viðstöðu – SAGA, fimmtudaginn 6/10 klukkan 21:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira