RavlE og félagar í NÚ rúlluðu LAVA upp

Snorri Rafn Hallsson skrifar
RAVLE

Leið NÚ og LAVA lá í Mirage þar sem Funky tryggði LAVA hnífalotuna og réttin á að byrja í vörn.

TripleG hóf skammbyssulotuna á þrefaldri fellu en þá lék Bl1ck sama leik og kom NÚ yfir strax í upphafi. NÚ tryggði sér snemma gott forskot þar sem leikmenn liðsins sýndu mikinn aga í hægum og vel æfðum aðgerðum sem Spike réð ekkert við með vappanum.

LAVA hysjaði örlítið upp um sig buxurnar um miðbik hálfleiks. Stalz og Goa7er sóttu góðar opnanir til að skapa liðsfélögum sínum tækifæri og halda svæðum á kortinu. RavlE fór hins vegar fyrir NÚ í góðum spretti undir lok hálfleiks til að ljúka hálfleiknum með gott forskot.

Staða í hálfleik: LAVA 5 – 10 NÚ

LAVA nálgaðist NÚ hægt og rólega í upphafi síðari hálfleiks þar sem Goa7er varði sprengjuna vel. Það var þó of seint í rassinn gripið og NÚ raðaði hverri lotunni inn á fætur annarri. Enn var RavlE atkvæðamestur í að brjóta vörn LAVA á bak aftur og léku leikmenn liðsins hver af öðrum til að vinna öruggan sigur. Hápunktur síðari hálfleiks var í nítjándu lotu þar sem Pandaz átti stórleik og sótti bæði upplýsingar og fellur fyrir NÚ.

Lokastaða: LAVA 9 – 16 NÚ

Næstu leikir liðanna:

  • LAVA – TEN5ION, fimmtudaginn 29/9 klukkan 19:30
  • SAGA – NÚ, fimmtudaginn 29/9 klukkan 20:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Leikmenn Fylkis bliknuðu í samanburði við Bl1ck

Þrír fyrrum Dusty leikmenn mættust í viðureign NÚs og Fylkis í gærkvöldi. Hart var slegist í Nuke og þurfti þrefalda framlengingu til að skera úr um sigurvegarana.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira