Innlent

Fundu tvö kíló af fíkni­efnum í töskum móður og sex­tán ára sonar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Norræna við höfn í Seyðisfirði.
Norræna við höfn í Seyðisfirði. Vísir/JóiK

Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Þar segir að móðirin sé á fertugsaldri en sonur hennar á sextánda aldursári. Þau hafi bæði verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til föstudagsins 23. september. Pilturinn er sökum ungs aldurs vistaður á stofnun ætluð fyrir ungmenni en gistir ekki fangageymslur meðan gæsluvarðhald varir.

Rannsókn málsins, sem unnið var í samstarfi lögreglu og tollgæslu, er sögð miða vel. Vegna rannsóknarhagsmuna geti lögregla ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×