Makamál

Hefur þú upplifað andlegt framhjáhald?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Orðasambandið andlegt framhjáhald hefur oft verið notað yfir svik í sambandi sem fela ekki í sér innileg líkamleg samskipti eða kynlíf. 
Orðasambandið andlegt framhjáhald hefur oft verið notað yfir svik í sambandi sem fela ekki í sér innileg líkamleg samskipti eða kynlíf.  Getty

Einn koss á næturklúbbi í hita leiksins eða leynileg, innileg samskipti og engin líkamleg snerting. Í hefðbundum ástarsamböndum eru bæði atvikin svik við maka en hvað flokkast sem framhjáhald og hvernig skilgreinum við það? 

Hvað er framhjáhald? 

Svik og brostið traust er líklega það sem kemur upp í huga flestra þegar framhjáhald ber á góma. Það getur þó verið mikill stigsmunur á framhjáhöldum, ef svo má segja, og misjafnt milli fólks og para hvert alvarleikastig svikanna er. 

Hin klassíska skilgreining á framhjáhaldi er þegar líkamleg nánd eða kynferðisleg nánd á í hlut, eins og koss eða kynlíf. En hvað með orðin, leynimakkið og allar tilfinningarnar? 

Þegar fólk hefur ekki tekið skrefið líkamlega en er jafnvel í innilegum, tilfinningalegum samskiptum við aðila utan sambandsins án vitundar maka. Er það þá ekki framhjáhald? 

Framhjáhald ekki alltaf endir ástarsambanda

Hugtakið andlegt framhjáhald hefur oft á tíðum verið notað yfir svik af þessu tagi og talið ekki síður alvarlegt eða skaðlegt. 

Þó svo að sum sambönd endi þegar upp komi um svikin þá þarf það ekki alltaf að vera raunin. Aðstæðurnar eru misjafnar hverju sinni og ef vilji er til staðar hjá báðum aðilum að vinna úr málunum, jafnvel með aðstoð fagaðila, ætti að vera hægt að byggja aftur upp traustið og sambandið. 

Spurning vikunnar er að þessu sinni kynjaskipt og er fólk beðið um að svara þeirri könnun sem við á. 

Spurt er um upplifun fólks á andlegu framhjáhaldi sem getur bæði verið aðili sem tekur þátt í svikunum eða sá aðili sem er svikinn.


Hefur þú upplifað andlegt framhjáhald? 


Konur svara hér: 

Karlar svara hér: 

Kynsegin svara hér: 


Umsjónarmaður Makamála mætti í Brennsluna á föstudagsmorgun þar sem rætt var um niðurstöður úr síðustu könnun Makamála og ný Spurning vikunnar kynnt til leiks. 


Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir

Segir sambönd geta orðið sterkari eftir framhjáhald

„Ég hef í minni vinnu hjálpað einstaklingum sem hafa byrjað samband sitt í framhjáhaldi og þeir hafa lent í erfiðleikum hvað varðar skömmina er tengist fyrrverandi maka,“ segir Björg Vigfúsdóttir í viðtali við Vísi.

Hefur þú átt eða verið viðhald?

Í kjölfarið umfjöllunar undanfarið um sambandsformið fjölástir hafa vaknað upp miklar umræður á kommentakerfum sem og kaffistofum landsins. Spurningin „Afhverju halda þau ekki bara framhjá?“ er ein þeirra sem oft kemur upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×