Musk hefur reynt að nýta sér ummæli uppljóstrarans Peiter Zatko, sem starfaði áður sem öryggisstjóri Twitter í deilum sínum við forsvarsmenn fyrirtækisins.
Sjá einnig: Musk vísar í uppljóstrara í nýju bréfi til Twitter
Musk skrifaði í apríl undir samning um að kaupa Twitter á 44 milljarða dala, eða 54 dali á hlut. Virði hlutabréfa Twitter stendur þegar þetta er skrifað í fjörutíu dölum á hlut.
Auðjöfurinn lýsti því þó yfir í sumar að hann væri hættur við kaupin og bar hann fyrir sig því forsvarsmenn Twitter hefðu ekki orðið við kröfum hans um gögn og upplýsingar um raunverulegan fjölda falskra reikninga og svokallaða botta. Hann sagðist þurfa þær upplýsingar til að meta raunverulegt verðmæti Twitter.
Forsvarsmenn Twitter hafa þó höfðað mál gegn Musk og vilja að hann verði látinn standa við kaupsamninginn.
Zatko gagnrýndi Twitter harðlega nýverið en Ásakanir hans sneru að miklu leyti að því að samfélagsmiðillinn væri óöruggur og forsvarsmenn Twitter hefðu blekkt notendur og yfirvöld varðandi hve illa varðar persónuupplýsingar notenda væru.
Sjá einnig: Fyrrverandi öryggisstjóri segir Twitter berskjaldað gegn tölvuárásum
Dómarinn Kathaleen McCormick varð í dag við kröfu Musks um að hann gæti notað uppljóstranir Zatkos í gagn-lögsókn sinni gegn Twitter en hún neitaði því að fresta aðalmeðferð málsins frá 17. október til nóvember.