Atvinnulíf

Að endurnæra hugann: Zuckerberg hætti að hlaupa

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Mark Zuckerberg finnst best að æfa á morgnana áður en hann mætir til vinnu. Nýlega sagðist hann þó ætla að hætta að hlaupa og snúa sér að öðruvísi hreyfingum því það væri of auðvelt fyrir hann að hugsa um vinnuna þegar hann væri að hlaupa. Sem væri akkúrat það sem hann vildi ekki gera. Og hvað er til ráða þá?
Mark Zuckerberg finnst best að æfa á morgnana áður en hann mætir til vinnu. Nýlega sagðist hann þó ætla að hætta að hlaupa og snúa sér að öðruvísi hreyfingum því það væri of auðvelt fyrir hann að hugsa um vinnuna þegar hann væri að hlaupa. Sem væri akkúrat það sem hann vildi ekki gera. Og hvað er til ráða þá? Vísir/Getty

Mark Zuckerberg, eigandi Meta sem á Facebook og fleiri samfélagsmiðla, æfir á morgnana áður en hann mætir til vinnu. Í viðtölum hefur hann sagt að morgnarnir séu sá tími sem henti honum best.

Mark var víst duglegur að hlaupa á morgnana en nýlega tilkynnti hann að hann væri hættur því. Ástæðan var sú að á hlaupunum fannst honum of auðvelt að hugsa um vinnuna.

Hreyfingin sem átti því að vera að gera honum gott bæði andlega og líkamlega, var ekki að ná þessari hugarhvíld frá vinnu sem nauðsynleg er.

Nú vitum við ekki hvaða ráðleggingar Zuckerberg hefur fengið en eflaust er þetta eitthvað sem margir aðrir kannast við: 

Að vera löngu komin í góða rútínu með holla og reglulega hreyfingu en ná ekki að hvíla hugann um leið.

Útkoman verður því:

Hugsa um vinnuna á hlaupum. Hugsa um vinnuna í sundi. Hugsa um vinnuna og lyfta lóðum.

Fara í göngutúr úti í náttúrunni….. og hugsa um vinnuna.

Fara í hugleiðslu til að tæma hugann….. en hugsa um vinnuna.

Að heyra þetta um Zuckerberg er því hin besta ábending til annarra sem eru að upplifa það sama.

Hvíld hugans og endurnæring er hins vegar jafn mikilvæg og hreyfingin sjálf og ef fleiri eru að glíma við þetta, er um að gera að leita ráða hjá þjálfurum eða öðrum sérfræðingum sem án efa luma á mörgum góðum ráðum.

Því þótt hreyfing gefi okkur orku er besta endurhleðsla hugsans að fá reglulega hvíld. 

Hér eru nokkrar tillögur sem mögulega gætu gefið einhverjum nýjar hugmyndir.

Prófaðu að:

Æfa með félaga þannig að þú sért í samtali og félagsskap á meðan þú æfir. Til dæmis að hlaupa með öðrum eða vera í hlaupahópi. Opna umræðuna um þetta þar og þiggja ráð.

Fara í tíma í ræktinni sem eru svo fjörugir að þú getur ekki hugsað um neitt annað en æfingarnar á meðan.

Breyta æfingunum sem þú hefur verið að stunda og þannig að þú sért líklegri til að hugsa ekki um vinnuna á meðan því hugurinn verður upptekinn af því að læra nýtt prógramm.

Hlusta á það góða tónlist á meðan þú hleypur eða ferð í göngutúr þannig að þú sért frekar að syngja með en að hugsa.

Hlusta á Bítið á bylgjunni eða Reykjavík síðdegis þannig að umræður annarra verði hugarefnið frekar en þínar eigin hugsanir. Eða góð podcöst.

Prófa nýjar hlaupaleiðir þannig að þú sért ekki í sjálfvirkni gírnum þegar þú ert að hlaupa. 

Sama á við um gönguleiðir. Prófa nýja staði og þá helst nýja staði í náttúrunni.

Fá ráðleggingar frá öðru fólki sem stundar sambærilegar hreyfingar og þú. Hvernig nær annað fólk að tæma hugann sinn?

Skoða hvort þú ættir að prófa eitthvað sem þú hefur ekki prófað áður en gæti hjálpað. Hefur þú til dæmis prófað jóga? Eða að vera hjá einkaþjálfara?

Sumt sem við stundum er þó þess eðlis að allt ofangreint er erfiðara. Að synda er gott dæmi um það því á meðan við syndum erum við ein með sjálfum okkur og þá er auðvelt að hugsa.

Á vefsíðunni Swimswam eru gefin góð ráð um hvernig við getum gert okkur upptekin af því að hugsa sem mest um sundæfinguna og hreyfinguna sem við erum í, frekar en að hugsa um aðra hluti. Sjá nánar HÉR.

Enn eitt ráðið er að skoða leiðir til að tryggja huganum hvíld og endurnæringu, til dæmis með markvissri hugleiðslu, en halda áfram að hugsa um vinnuna á meðan þú ert að æfa eða hreyfa þig.


Tengdar fréttir

Nemó finnst forstjóri Haga hlaupa heldur hægt

Það er enginn dagur eins í vinnunni segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Finnur er af sumum kallaður íþróttaálfur en hundinum Nemó finnst morgunlaupið þó heldur hægt.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×