Makamál

Hefur þú upplifað sambandsslit vegna flókinna stjúptengsla?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Að setja saman fjölskyldur getur verið þó nokkur áskorun í nútímasamfélagi. 
Að setja saman fjölskyldur getur verið þó nokkur áskorun í nútímasamfélagi.  Getty

Ástin sigrar allt! Er það ekki annars? Í nútímasamfélagi er þetta ekki alltaf svona einfalt, fjölskyldumynstrið hefur breyst. Þessi ást sem sigrar allt er ekkert endilega ástin á milli maka.

Áskorun að mynda nýja fjölskyldu

Það mætti segja að samsettar fjölskyldur séu orðnar hálfgert norm, fjölskyldur eru orðnar allavega og með tilheyrandi áskorunum. 

Þó svo að fólk sé yfir sig ástfangið er ekkert gefið að það sé dans á rósum að mynda ný fjölskylduform. Ef nýi makinn á börn fyrir, ef þú átt börn fyrir eða jafnvel þið bæði. 

Það er eðlilegt að fólk hafi mismunandi áherslur þegar kemur að uppeldi, reglum og heimilishaldi og því getur það reynt verulega á þegar gildin eru mjög ólík þegar á að slípa sig saman. Á sama tíma er það heldur ekkert gefið að öllum komi vel saman. 

Áherslumunurinn og ólík gildi geta vissulega valdið flækjum sem pör geta upplifað sem óyfirstíganlegar, sérstaklega þegar reynir á. 

Getty

Leita faglegra ráða frá byrjun 

Þó svo að hrifning og ást sé til staðar getur álagið við að setja saman nýjar fjölskyldur reynst mörgum pörum ofviða en í flestum tilfellum er skynsamlegast fyrir pör í samsettum fjölskyldum að leita sér aðstoðar við stjúptengsl, alveg frá byrjun en ekki bara þegar allt er farið í vitleysu. 

Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru, eða hafa verið í samsettum fjölskyldum. 

Hefur þú upplifað sambandsslit vegna flókinna stjúptengsla?


Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×