Neytendur

Bensín­verð ekki náð met­hæðum að raunvirði og geti enn hækkað

Eiður Þór Árnason skrifar
Ekkert lát virðist vera á hækkunum á eldsneytisverði. Þrátt fyrir það segir Elísa Arna Hilmarsdóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, að engin met hafi fallið.
Ekkert lát virðist vera á hækkunum á eldsneytisverði. Þrátt fyrir það segir Elísa Arna Hilmarsdóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, að engin met hafi fallið. Samsett

Þrátt fyrir að bensínverð hafi aldrei verið hærra í krónum talið í kjölfar umtalsverðra hækkana er enn nokkuð í að bensínverð nái hæstu hæðum á Íslandi.

Bensínverð fór yfir 350 krónu múrinn á velflestum sölustöðum olíufélaganna í vikunni en ef tekið er mið af verðlagsþróun þá var meðalverðið í gær 44 krónum lægra að raunvirði en þegar það náði hámarki árið 2012.

Þetta má lesa úr greiningu hagfræðinga Viðskiptaráðs Íslands sem tekur mið af þróun verðbólgu frá árinu 1996. Í útreikningunum er gert ráð fyrir 8,4% verðbólgu í júnímánuði í samræmi við spár viðskiptabankanna.

„Þetta hefur hækkað mjög hratt en við eigum enn þá alveg töluvert inni ef við ætlum að fara að tala um einhver söguleg met,“ segir Elísa Arna Hilmarsdóttir, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, í samtali við fréttastofu.

Mikilvægt sé að hafa í huga á tímum mikillar verðbólgu og verðhækkana að há krónutala jafngildi ekki endilega því að verð hafi ekki verið hærra.

Hækkanir farið fram úr spám bankanna

„Bensín hefur auðvitað aldrei verið hærra í krónum talið en það segir ekki alla söguna. Með sama hætti mætti segja að mjög margar vörur hafi aldrei verið hærri í krónum talið, þó staðreyndin sé kannski önnur þegar tekið er tillit til verðlagsþróunar. Vissulega hefur bensínverð hækkað mikið undanfarið en í þessu samhengi er nauðsynlegt að líta einnig til verðbólgunnar,“ segir Elísa Arna.

Á móti komi að bensínbílar séu almennt sparneytnari nú en fyrir tíu árum sem skili sér í því að fólk þurfi sjaldnar að leggja kortið að bensíndælunni.

Eldsneytisverð hefur hækkað meira hér á landi að undanförnu en greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans gerðu ráð fyrir. Landsbankinn gaf í gær út nýja verðbólguspá og spáir nú 8,7% verðbólgu í júní. Um er að ræða talsvert meiri hækkun en í síðustu spá bankans frá því í maí. Landsbankinn segir skýringuna fyrst og fremst að bensín og olíuverð hafi hækkað mun meira en bankinn átti von á.


Tengdar fréttir

350 króna múrinn fallinn

Bensínlítrinn er nú víða kominn yfir 350 krónur í kjölfar umtalsverðra hækkana seinustu misseri. Samkvæmt gögnum frá Gasvaktinni reið Orkan á vaðið á mánudag og hækkaði verð á flestum stöðvum sínum um 11,5 krónur úr 343,4 krónum í 354,9 krónur á lítrann.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×