Makamál

Hvort kýstu frekar að fara með eða án maka á djammið?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Eru þið parið sem gerir flest allt saman? 
Eru þið parið sem gerir flest allt saman?  Getty

Hinn helmingurinn, betri helmingurinn, lífsförunauturinn... Hversu samstíga eru þú og maki þinn? 

Það er engin ein formúla þegar kemur að góðum samböndum og mjög misjafnt hvernig fyrirkomulag hentar hverju pari. Eins er það með samverustundirnar, áhugamál og samkvæmislífið. Á meðan sum pör kjósa að gera flest allt saman eru önnur jafnvel með ólík áhugamál eða vilja gera fleiri hluti í sitthvoru lagi. 

Sumir viðburðir eins og brúðkaup eða árshátíðir hafa yfirleitt það fyrirkomulag að maka er boðið með og mætti kannski segja að það væri algengara en ekki að pör mæti saman á slíka viðburði. 

En hvað með samkvæmislífið almennt? Vina-hittingana og alla þess mismerkilegu viðburði, eða bara djammið? 

Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru í ástarsambandi og er fólk beðið um að svara þeirri könnun sem best á við. 


Konur: 

Karlar: 

Hinsegin: 


Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.



Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir

Færðu hrós fyrir líkamann frá makanum?

Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeir upplifi sig kynþokkafulla í sambandinu sínu. Núna spyrjum við um hrós frá maka. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×