Neytendur

Banna bíla­sölum að aug­lýsa til­boð á notuðum bílum án fyrra verðs

Atli Ísleifsson skrifar
Stofnunin skoðaði 72 vefsíður bílasala og kom þá í ljós að tilefni hafi verið til athugasemda við 53 þeirra.
Stofnunin skoðaði 72 vefsíður bílasala og kom þá í ljós að tilefni hafi verið til athugasemda við 53 þeirra. Getty

Neytendastofa hefur bannað bílasölunum Bílakaupum ehf. og Netbílum ehf. að auglýsa tilboð á notuðum bílum án þess að tilgreina fyrra verð. Þetta er gert eftir að bílasölurnar brugðust ekki við erindum stofnunarinnar og gerðu ekki úrbætur á vefsíðum sínum.

Þetta segir á heimasíðu Neytendastofu. Þar segir að stofnunin hafi skoðað vefsíður bílasala með notaða bíla í júlí 2021. Tilgangur skoðunarinnar hafi verið að athuga hvort þar væru að finna tilboðsauglýsingar á bílum án þess að fram kæmi fyrra verð. Stofnunin skoðaði 72 vefsíður og hafi þá komið í ljós að tilefni hafi verið til athugasemda við 53 þeirra.

„Neytendastofa sendi bílasölunum bréf þar sem vakin var athygli á skyldu til að kynna aðeins verðlækkun sem er raunveruleg og að taka fram fyrra verð þegar tilboð er kynnt. Í bréfinu voru jafnframt sett fram tilmæli um að gæta þess að fara að þeim lögum og reglum er gilda um auglýsingar og tilboðsmerkingar.

Neytendastofa fylgdi skoðuninni eftir í lok janúar sl. og enn voru tilboðsauglýsingar á vefsíðum 46 bílasala í ólagi. Í kjölfar athugasemda Neytendastofu voru gerðar viðeigandi úrbætur hjá 44 bílasölum

Tvær bílasölur brugðust hins vegar ekki við erindum Neytendastofu og gerðu ekki úrbætur á vefsíðum sínum. Því hefur stofnunin nú tekið ákvörðun um að banna Bílakaup ehf. og Netbílum ehf. að auglýsa tilboð á bifreiðum án tilgreinds fyrra verðs,“ segir á heimasíðunni.

Verði ekki farið að banninu mega bílasölurnar búast við að tekin verði ákvörðun um sektir á grundvelli laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×