Innlent

Lætur kanna kosti og galla sam­einingar Land­græðslunnar og Skóg­ræktarinnar

Atli Ísleifsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Vísir/Vilhelm

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur látið hefja forathugun á sameiningu Skógræktar ríkisins og Landgræðslunnar.

Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu segir að um sé að ræða lykilstofnanir í loftslagsmálum og að þær vinni báðar að vistvernd og nýtingu lands og vinni að mörgu leyti hliðstæð verkefni sem snúi að losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda.

„Landgræðslan og Skógræktin eiga báðar ríka og farsæla sögu um samstarf með grasrótarsamtökum, almenningi og landeigendum. Það umhverfi sem stofnanirnar vinna í hefur tekið hröðum breytingum, og væntingar almennings og stjórnvalda hafa breyst. Ákvörðun matvælaráðherra er tekin með tilliti til þessa, augljósrar skörunar verkefna og mikillar samlegðar.

Samræmd stefnumótun 

Samkvæmt nýjum lögum um skógrækt og landgræðslu skal gera stefnumarkandi áætlanir um landgræðslu og skógrækt til lengri tíma. Í matvælaráðuneytinu er jafnframt unnið að því að samræmaingu tillöguragna í eina heildaráætlun sem nær m.a. yfir verndun og endurheimt vistkerfa, náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum, og sjálfbæra landnýtingu. Þessi nálgun mun einfalda til muna forgangsröðun og þannig stuðla að aukinni skilvirkni og auknum árangri.

Sameinuð fagþekking myndar öfluga stofnun 

Síðustu ár hafa bæði Landgræðslan og Skógræktin aukið ráðgjöf til landeigenda og unnið að mörgum samvinnuverkefnum með þeim. Þar má m.a. nefna skógrækt á lögbýlum og verkefnið Bændur græða landið. Sérfræðingar beggja stofnana búa yfir mikilli sérhæfðri þekkingu og öflugar rannsóknir á vistkerfum, gróðurfari og loftslagi eru stundaðar af beggja hálfu,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Svandísi að með því að sameina fagþekkingu og krafta þessara stofnana verði til öflug stofnun sem sinni ráðgjöf við nýtingu lands og styðji við eflingu allra vistkerfa og landgæða til framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×