Viðskipti erlent

Ætla í hart gegn lykil­orða­deilingu eftir að á­skrif­endum fækkaði fyrsta sinn í ára­tug

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn Netflix ætla í hart við fólk sem deilir lykilorðum sínum með öðrum.
Forsvarsmenn Netflix ætla í hart við fólk sem deilir lykilorðum sínum með öðrum. Getty/Aaron P

Streymisveitan Netflix tapaði áskrifendum í fyrsta sinn í tíu ár á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Í kjölfar birtingar ársfjórðungsuppgjörsins lækkaði virði hlutabréfa félagsins um meira en fjórðung.

Á fyrsta fjórðungi síðasta árs fjölgaði áskrifendum um tæpar fjórar milljónir.

Áskrifendum fækkaði um tvö hundruð þúsund á fjórðungnum en forsvarsmenn Netflix segja það vegna aukinnar samkeppni, þess að fólk deili lykilorðum sín á milli, verðbólgu og jafnvel vegna innrásarinnar í Úkraínu.

Tekjur Netflix jukust um 9,8 prósent og voru rúmar 7,8 milljarðar dala.

Í bréfi til hluthafa skrifaðu forsvarsmenn Netflix að töluvert hefði hægt á tekjuvexti. Streymi sjónvarpsefnis væri vinsælla en línulegt sjónvarp og Netflix væri mjög vinsælt.

Hins vegar væru mjög margir sem brytu reglur streymisveitunnar með því að deila lykilorðum sínum með öðrum. Áætlað væri að það væri gert á rúmlega hundrað milljónum heimila víða um heim. Til stendur að reyna að sporna gegn því, samkvæmt frétt BBC.

Innrásin kostaði 700 þúsund áskrifendur

Þá segir Netflix að það að hætta viðskiptum í Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu hafi kostað fyrirtækið um 700 þúsund áskrifendur. Aðrir 600 þúsund hafi hætt í Bandaríkjunum og Kanada eftir að verðhækkun.

Síðast fækkaði áskrifendum Netflix á þriðja ársfjórðungi 2011. Forsvarsmenn Netflix hafði spáð því að áskrifendum myndi fjölga um 2,5 milljónir á fyrsta fjórðungi þessa árs en eins og áður hefur komið fram fækkaði þeim um tvö hundruð þúsund. Nú spáir Netflix því að áskrifendum muni fækka um tvær milljónir á næsta fjórðungi, samkvæmt frétt CNBC.

Miðillinn hefur eftir Reed Hastings, framkvæmdastjóra, að verið sé að kanna að fjölga áskriftarleiðum og þar á meðal ódýrari áskriftarleiðum þar sem áskrifendur þyrftu að horfa á auglýsingar. Hingað til hafa forsvarsmenn Netflix verið á móti tillögum um slíkar áskriftarleiðir.

Áhugasamir geta fundið uppgjörið og aðrar upplýsingar hér á vef Netflix.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×