Viðskipti innlent

Faðir fjár­mála­ráð­herra einn fjár­festa sem keypti í Ís­lands­banka

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Faðir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra er einn þeirra sem keypti hlut í bankanum.
Faðir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra er einn þeirra sem keypti hlut í bankanum. Vísir/Vilhelm

Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra, er einn þeirra sem keypti hlut í Íslandsbanka þann 22. mars síðastliðinn. 

Seldur var 22,5 prósenta hlutur í bankanum í sölunni og keypti Benedikt Sveinsson 0,1042% hlut í bankanum. 

Útboðið á hlutum í Íslandsbanka hefur verið harðlega gagnrýnd. Nú hefur listinn yfir kaupendur verið birtur á vef Stjórnarráðsins og er einkahultafélagið Hafsilfur eitt þeirra. Hafsilfur, sem er alfarið í eigu Benedikts samkvæmt upplýsingum á Creditinfo, keyptu hlut í bankanum fyrir rúmar 54 milljónir króna. 

Eignarhaldsfélagið Steinn, sem er í meirihlutaeigu Þorsteins Más Baldvinssonar forstjóra Samherja, keypti þá 0,5628 prósenta hlut í Íslandsbanka, eða fyrir rúmar 296 milljónir króna. 

Mikil eftirspurn var eftir hlutum í bankanum í útboðinu en alls buðu 430 fjárfestar í 50 milljón hluti þar sem verð á hverjum hlut var 117 krónur eða fjórum prósentum lægra en markaðsgengi. Þeir voru seldir fyrir samtals 52,7 milljarða króna. 

Bjarni óskaði eftir því við Bankasýslu ríkisins, í kjölfar mikillar gagnrýni á ógagnsæi, og óskaði eftir lista yfir þá sem keyptu. Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslunnar, lýsti því í viðtali í Dagmálum, spjallþætti Morgunblaðsins, að Bjarni kæmi líklega að lokuðum dyrum. Nú hefur listinn þó verið birtur. 

Bankasýslan vill ekki birta listann

Bankasýslan birti síðdegis í dag bréf til fjármálaráðherra á heimasíðu sinni þar sem fram kemur að hún hafi leitað lögfræðiráðgjafar um hvort stofnuninni væri heimilt að afhenda eða birta opinberlega upplýsingar um þátttakendur í útboðinu. 

Bankasýslan leitaði til lögmannastofunnar LOGOS, sem mat það svo að vegna lagaákvæða um þagnarskyldu væri óvarlegt að nafngreina kaupendur í útboðinu án skriflegs samþykkis viðkomandi. 

Þá hafi Bankasýslan sömuleiðis leitað afstöðu Íslandsbanka í málinu en fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskipti bankans gengdu hlutverki umsjónaraðila og önnuðust um uppgjör viðskiptanna. 

Bankasýslan hafi sömuleiðis kannað hvort opinber birting þessara upplýsinga um kaupendur, umfram það sem leiðir af lögum, sé í samræmi við venjur og framkvæmd á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í viðskiptum sem þessum. Niðurstaða könnunarinnar væri sú að opinber birting slíkra upplýsinga væri á skjön við viðteknar venjur á alþjóðlegum mörkuðum. 

Flestir nýrra hluthafa einkafjárfestar

Flestir nýir hluthafar eru einkafjárfestar, eða alls 140 og keyptu þeir samtals fyrir 16,1 milljarð króna í bankanum eða fyrir 30,6 prósent þeirrar fjárhæðar sem greidd var í útboðinu. Þar á eftir koma lífeyrissjóðir, sem voru 23, og greiddu þeir samtals 19,5 milljarða fyrir hluti í bankanum, eða 37,1 prósent þeirrar fjárhæðar sem greidd var.

Þar á eftir koma aðrir fjárfestar, sem voru fjórtán, sem keyptu fyrir 3,5 milljarða eða 6,7 prósent, og svo verðbréfasjóðir, sem voru þrettán og keyptu fyrir 5,6 milljarða eða 10,6 prósent. 

Af fjárfestunum 209 sem keyptu hlut í bankanum voru 190 innlendir og nítján erlendir. 

Mata-systkinin, Pálmasynir og körfuboltakempan Fannar Ólafsson hluthafar

Fjárfestingafélagið Pund, sem er alfarið í eigu Hannesar Hilmarssonar stjórnarformanns Air Atlanta, keypti 0,5126 prósenta hlut í bankanum, eða fyrir tæpar 270 milljónir króna. Félagið Brimgarðar, sem er í eigu Eggerts Árna, Gunnars Þórs, Halldórs Páls og Guðnýjar Eddu Gíslabarna, og Coldrock Investments limited eigenda Mata hf., keypti 0,8977 prósenta hlut í bankanum eða fyrir rúmar 472 milljónir króna. 

Eignarhaldsfélagið Hof, sem er í eigu bræðranna Jóns og Sigurðar Gísla Pálmasona, keypti 0,2016 prósenta hlut í bankanum fyrir rúmar 106 milljónir króna. FÓ Eignarhald, sem er í eigu körfuboltamannsins Fannars Ólafssonar, keypti  0,3417 prósenta hlut í bankanum fyrir tæpar 180 milljónir króna. 

Einkahlutafélagið Jakob Valgeir ehf. keypti þá hlut í bankanum fyrir tæpan milljarð króna, eða 936 milljónir, og eignaðist þar með 1,7778 prósenta hlut í Ísandsbanka. Björg Hildur Daðadóttir á tæp 69 prósent í félaginu og bæðurnir Guðbjartur og Brynjólfur Flosasynir hin 30 prósentin. Félagið gerir út þrjú skip og rekur fiskvinnslu í Bolungarvík. 

Listann í heild má sjá í skjalinu hér að neðan. Sömuleiðis má þar finna bréf Bankasýslunnar til fjármálaráðherra og minnisblað LOGOS.

Tengd skjöl


Tengdar fréttir

Traustið á sölu­ferli Ís­lands­banka horfið

„Almenna reglan held ég að menn hafi sent á allan sinn kúnnahóp tölvupósta um leið og þetta var tilkynnt svo allir vissu að þetta væri komið. Svo var þetta tilkynnt formlega. Söluaðilinn hefur líka hagsmuni af því að sem flestir frá honum skili sér inn því þóknanatekjurnar koma vegna þess. Þannig að allir hvatar hjá sölufyrirtækjunum eru til þess að reyna að fjölga sem mest þeim sem taka þátt.“

Ó­lík­legt að Bjarni fái upp­lýsingar frá Banka­sýslunni

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir ekkert því til fyrirstöðu af sinni hálfu að gefa upp hverjir keyptu hlut í Íslandsbanka á afslætti. Ef lög standi ekki í vegi fyrir birtingu. Lárus Blöndal stjórnarformaður Bankasýslunnar slær þá hugmynd hins vegar út af borðinu.

Hyggst birta lista yfir kaup­endur í Ís­lands­banka ef lög leyfa

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur leitað til Bankasýslu ríkisins og óskað eftir lista yfir þá sem keyptu hlut í Íslandsbanka í útboðinu sem fram fór á dögunum þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut í bankanum. Hann segir listann verða birtan telji Fjármálaeftirlit Seðlabankans slíkt standast lög.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×