Viðskipti erlent

Tengja 91 milljarðs króna snekkju við Pútín

Samúel Karl Ólason skrifar
Hér má sjá snekkjuna Scheherazade við stendur Tyrklands í ágúst 2020.
Hér má sjá snekkjuna Scheherazade við stendur Tyrklands í ágúst 2020. Getty/Osman uras

Glæsisnekkja sem metin er á um 91 milljarð króna og liggur við bryggju á Ítalíu er í eigu Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Það er samkvæmt bandamönnum Alexeis Navalní, pólitísks andstæðings Pútíns sem situr í fangelsi nærri Moskvu.

Scheherazade er 139 metra löng glæsisnekkja og er útbúin þyrlupalli, sundlaug, kvikmyndahúsi og vörnum til að skjóta niður dróna, samkvæmt heimildum sem Forbes vitnar í. Snekkjan var smíðuð í Þýskalandi og sjósett árið 2020 og er nú í Marina di Carrara á Ítalíu.

Yfirvöld víða um heim vinna nú hörðum höndum að því að finna eigur rússneskra auðjöfra sem tengjast Pútín og hafa verið beittir refsiaðgerðum vegna innrásar Rússa í Úkraínu og frysta þær eigur. Búið er að leggja halda á þó nokkrar snekkjur víða um heim.

Eigur Pútíns eru aldrei skráðar á hann sjálfan, heldur eru þær sagðar vera formlegar eignir auðjöfra sem honum tengjast. Hann er þó talinn mögulega eiga Scheherazade með hálf-beinum hætti í gegnum aflandsfélög.

Ráðamenn á Ítalíu hafa reynt að finna út hver á snekkjuna og fyrr í mánuðinum sagði New York Times frá því að yfirvöld í Bandaríkjunum hefðu fundið vísbendingar um að hún væri í eigu Pútíns.

Samtök Navalnís hafa í nokkur ár rannsakað spillingu Pútíns og bandamanna hans og hafa meðal annars bent á glæsihýsi sem kallað er „höll Pútíns“. Í nýju myndbandi sem samtökin birtu í gær er staðhæft að Pútín eigi Scheherazade.

Meðal annars hafi þau fundið út að áhafnarmeðlimir snekkjunnar starfi hjá stofnun sem verndi háttsetta rússneska embættismenn.

Myndbandið má sjá hér að neðan. Það er á rússnesku en hægt er að setja á enskan texta.

Rannsakendur samtaka Navalnís segjast hafa komið höndum yfir lista yfir áhafnarmeðlimi snekkjunnar. Næstum því allir þeirra eru rússneskir og margir voru skráðir til starfa hjá opinberri rússneskri stofnun sem sér um að vernda hátt setta rússneska embættismenn og kallast FSO.

Þessi stofnun mun einnig sjá um öll formleg heimili Pútíns. Hún byggi þau, verji, haldi þeim við og sjái um hag Pútíns þegar hann heldur til í þeim.

„Þeir sjá bókstaflega um líf Pútíns,“ segir María Pevchikh, einn rannsakenda samtakanna á Twitter. Hún fjallaði um niðurstöður rannsóknarinnar á Twitter í gær. Hún sagði að einn úr áhöfn skipsins hefði sent þeim myndir þaðan og staðfest að snekkjan væri í eigu Pútíns.

Rannsóknarblaðamannasamtökin OCCRP segjast hafa fundið eignir rússneskra auðjöfra víðsvegar um heiminn sem metnar sé á rúmlega sautján milljarða dala en það samsvarar um 2,2 billjónum króna (2.213.910.000.000).

Þar á meðal séu snekkjur, glæsihýsi, íbúðir í Lundúnum og París, einkaflugvélar og jafnvel kastalar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×