Innlent

Segir Agnieszku enn reyna að grafa upp hluti til að nýta í árásir

Eiður Þór Árnason skrifar
Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, og Agnieszka Ewa Ziólkowska, starfandi formaður félagsins. 
Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, og Agnieszka Ewa Ziólkowska, starfandi formaður félagsins. 

Í dag samþykkti stjórn Eflingar að láta lögfræðing framkvæma sérstaka lögfræðiúttekt á samningum stéttarfélagsins. Frá þessu greinir Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, og segir úttektina hluta af áframhaldandi tilraun Agnieszku Ewa Ziólkowska, fráfarandi formanns, til að reyna að „grafa upp eitthvað sem gagnast gæti í árásum hennar“ á sig.

Fjallað var um það fyrr í mánuðinum að Agnieszku hafi borist bréf frá Viðari þar sem hún var innt eftir útskýringum á ummælum sem hún lét falla á fundi trúnaðarráðs um ráðstöfun fjármuna félagsins.

Samkvæmt heimildum fréttastofu ýjaði hún að því á fundinum að ekki hafi verið staðið að samningum við Andra Sigurðsson um vefsíðugerð með lögmætum hætti og að hún væri að „rannsaka“ málið. Kostnaður við samninginn er sagður hafa hlaupið á mörgum, ef ekki tugum, milljóna króna.

Viðar fullyrti síðar að endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hafi ekki gert neinar athugasemdir við viðskipti stéttarfélagsins við vefhönnunarfyrirtækið Sigur vefstofu.

Segir þetta hluta af kosningabaráttu

Viðar furðar sig á því að Agnieszka og stjórn Eflingar hafi ekki látið þar við sitja og vilji nú láta útbúa lögfræðiúttekt. Agnieszka tók við sem starfandi formaður eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér formennsku. Listi Sólveigar endurnýjaði svo umboð sitt í stjórnarkjöri Eflingar þann 15. febrúar en hún hefur ekki enn tekið við formennsku. 

„Að venju þá reikna ég með að ekkert samband verði haft við mig, mér ekki tilkynnt að ég sé undir rannsókn eða gefið færi á að tjá mig eða veita svör og útskýringar. Agnieszka eða aðrir stjórnarmenn munu ekki sjálf standa fyrir máli sínu um eitt eða neitt, heldur munu þau eins og vanalega leka gögnunum í fjölmiðla og skýla sér bakvið nafnleysi,“ segir hann í færslu á Facebook-síðu sinni.

„Þess verður svo auðvitað vandlega gætt að lýsa glæpum mínum með mátulega óljósu orðalagi. Best er að gera það þannig til að nógu erfitt sé að bera nokkuð til baka.“

Hann segir þetta merki um áframhaldandi kosningabaráttu Agnieszku sem hafi byrjað fyrir alvöru þegar Sólveig Anna Jónsdóttir sigraði kosningarnar í febrúar.

„Daginn eftir byrjaði Agnieszka á að ata mig aur á fundi trúnaðarráðs að mér fjarstöddum. Hún svaraði ekki skriflegri beiðni minni um útskýringar heldur lak málinu í fjölmiðla, þar sem hefur verið kjamsað á því með aðstoð nafnlausra heimildarmanna, ýmsar fréttir birtar um mig og varaforseti Alþýðusambandsins ræstur út til að lýsa áhyggjum sínum af því að ég stundi fjárdrátt og önnur lögbrot,“ skrifar Viðar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×