Atvinnulíf

Að fara á trúnó í vinnunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hver eru mörkin á því að ræða persónuleg málefni í vinnunni? Hvenær er í lagi að fara á trúnó við vinnufélaga og hvenær getur það hreinlega skaðað þig að tala of mikið, of oft eða of ítarlega um þína einkahagi eða persónuleg mál?
Hver eru mörkin á því að ræða persónuleg málefni í vinnunni? Hvenær er í lagi að fara á trúnó við vinnufélaga og hvenær getur það hreinlega skaðað þig að tala of mikið, of oft eða of ítarlega um þína einkahagi eða persónuleg mál? Vísir/Getty

Eitt af því skemmtilega við starfið okkar er að eignast vini í samstarfsfélögum okkar. Sem sumir hverjir enda með að verða okkar bestu vinir út ævina.

En hvenær erum við að blanda einkalífinu okkar of mikið í vinnuna?

Já, við erum hreinlega að velta þeirri spurningu upp: Hversu oft, mikið eða yfir höfuð eigum við að fara á trúnó í vinnunni um persónulegu málin okkar?

Auðvitað er einfalda svarið það að mælikvarðinn snúist þá um málefnið, um hvað verið er að tala, hvenær og hvers vegna. 

En stundum snýst þetta líka um hversu oft eða mikið fólk er að tala um sitt einkalíf í vinnunni og þá þannig að það að blanda einkalífinu við vinnuna verður eins og viðtekin venja eða hegðun.

Sumum finnst til dæmis afar þreytandi hversu oft og mikið sumt fólk talar um sitt einkalíf.

Á meðan öðrum finnst það frábært hversu opinskár vinnustaðurinn er um allt og alla.

En hér eru nokkur atriði sem geta hjálpað til við að finna hinn gullna meðalveg.

Hver er tilgangurinn?

Það getur verið í góðu lagi að fara í trúnó í vinnunni ef við teljum það samtal geta gagnast okkur eða þeim samstarfsfélögum sem við erum að tala við.

Ef til dæmis tilgangurinn er að láta samstarfsfólk vita að mögulega verðir þú eitthvað annars hugar í dag vegna þess að þú hafir áhyggjur af einhverju heima fyrir eða tengt fjölskyldunni.

En ef tilgangurinn er einungis sá að fá persónulega útrás fyrir því að ræða um það sem hrjáir þig, þá er vinnustaðurinn ekki rétti staðurinn fyrir þau samtöl. 

Getur fólk farið að efast um þig?

Ef við erum að tala alltof mikið um einkalífið okkar í vinnunni, jafnvel aftur og aftur og endalaust, getur það leitt til þess að samstarfsfólkið okkar fer að efast um hæfnina okkar eða getu í vinnunni.

Fólk getur til dæmis farið að velta því fyrir sér hvort við séum of annars hugar, utan við okkur, ekki að helga okkur verkefnunum nægilega vel, ekki að afkasta (sem bitnar þá á vinnufélögum eða viðskiptavinum) og svo framvegis.

Hugsaðu því vel um hvað þú ert að segja, hversu oft þú ert að tala um hlutina, við hverja þú ert að tala og hvort það er eitthvað gagn af þessum samtölum, áður en þú byrjar að tala um hlutina.

Þá getur það auðveldlega gerst að áður en þú veist af, vita miklu fleiri um þína einkahagi en þú ætlaðir þér í upphafi.

Er þetta trúnó á milli vina?

Að fara á trúnó við vinnufélaga getur verið uppsprettan á góðum vinskap eða hluti af vinskap sem er löngu orðin til.

Ef svo er, getur trúnó í vinnunni verið viðeigandi því vinur þinn vill örugglega heyra af því ef eitthvað er „að.“

Hins vegar þarftu hér að vera viss um að viðkomandi vinnufélagi eða vinnufélagar, upplifi vinskapinn ykkar þannig að svona persónulegum upplýsingum sé deilt ykkar í milli.

Þegar trúnó er beinlínis óviðeigandi

Stundum getur það hreinlega haft mjög truflandi áhrif á vinnufélagana ef einhver er ítrekað að ræða um sín persónuleg mál.

Stundum eru þau mál líka þess eðlis að það er beinlínis óviðeigandi að ræða þau of mikið, of oft eða yfir höfuð í vinnunni.

Þá getur það verið óviðeigandi að deila hreinlega öllu úr einkalífinu í vinnunni. Því þótt margt af því sem þú sért kannski að tala um sé frekar saklaust, getur vinnufélögunum fundist það óviðeigandi að vita „nánast allt“ um þig og þína.

Eins er gott að huga að því hvenær þú ert að segja hlutina. Því það getur virkað öðruvísi á fólk hvort umræðan fari fram yfir hádegismat eða hvort þú ert að tala um eitthvað tengt einkalífinu á meðan fólk er við vinnu, viðskiptavinir í kring og svo framvegis.


Tengdar fréttir

Að leysa vind í vinnunni

Það getur enginn þóst aldrei hafa lent í því að hafa prumpað í vinnunni. Jafn neyðarlega og það kann að vera.

Valdeflandi að eiga flottar myndir af sjálfum sér

Þegar Saga Sig, ljósmyndari, leikstjóri og listakona, tekur myndir af fólki, er hún meðvituð um það að myndirnar munu lifa. Oft eru þetta heimildir síðar meir, ekki síst partur af sögu um til dæmis fólk í stjórnmálum eða rithöfunda.

Að vera kvíðin yfir því að verða kvíðin

Við erum alla daga að kljást við að vera okkar besta útgáfa. Það er alltaf draumurinn: Að líða vel, vera kát, ganga vel í vinnu og einkalífi. Hljómar kannski auðvelt en svo margt í dagsins amstri getur verið streituvaldandi.

Að kveðja á síðasta vinnudeginum

Eitt af því skemmtilega við vinnuna er að flest okkar eignumst góða vini á lífsleiðinni, einmitt í gegnum starfsframan. En það að kveðja á síðasta vinnudeginum getur oft valdið ákveðnum heilabrotum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×