Bílar

Rivian er á góðri leið að aukinni framleiðslu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rivian-pallbíllinn er með risastórar 180 kWh rafhlöður.
Rivian-pallbíllinn er með risastórar 180 kWh rafhlöður.

Framkvæmdastjóri bandaríska rafbílaframleiðandans Rivian, RJ Scaringe segir að fyrirtækið sé „á góðri leið í átt að aukinni framleiðslu.“ Hann hefur einnig sagt að félagið stefni á 10% markaðshlutdeild á rafbílamarkaði fyrir árið 2030.

Rivian hóf framleiðslu á R1T rafpallbílnum í september í fyrra og smíðaði 1015 bíla á síðasta ári. Markmiðið voru 1200 bílar en flöguskortur setti strik í reikninginn. Verksmiðja Rivian var stöðvuð fyrstu tíu daga ársins til að gera breytingar í átt að aukinni framleiðslugetu.

Einungis örfáir R1S jeppar eru inni í framleiðslutölum síðasta árs. Framleiðslan á R1S byrjaði 15. desember og tveir hafa verið afhendir kaupendum.

RJ Scaringe lét hafa þetta eftir sér á Wolfe Research ráðstefnunni sem fram fór í fyrradag. Scaringe bætti við að markmiðið væri að byggja upp vöruframboð sem gæti gert Rivian keift að ná 10% markaðshlutdeild á rafbílamarkaði fyrir árið 2030.

Eins og stendur er framleiðslugeta helsti takmarkandi þáttur í ferlum Rivian. Í janúar smíðaði fyrirtækið um 200 bíla á viku. Sem er hvergi nærri nóg til að anna eftirspurn. Rúmlega 71.000 forpantanir eru til staðar í Bandaríkjunum og Kanada á pallbílnum og jeppanum.

Auk þess að smíða R1T pallbílinn er Rivian búið að semja við Amazon um smíði 100.000 sendibíla fyrir árið 2025. En 10.000 þeirra eiga að afhendast á þessu ári.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×