Makamál

Spurning vikunnar: Hversu mikilvægur er forleikur í kynlífi?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Kertaljós, kossar, daður, strokur, nudd og spenna eru dæmi um það sem við köllum forleik í kynlífi. Á meðan einhverjum gæti fundist forleikur stórkostlega vanmetinn í kynlífi eru aðrir sem segja hann óþarfan.  
Kertaljós, kossar, daður, strokur, nudd og spenna eru dæmi um það sem við köllum forleik í kynlífi. Á meðan einhverjum gæti fundist forleikur stórkostlega vanmetinn í kynlífi eru aðrir sem segja hann óþarfan.   Getty

Þegar kemur að þörfinni fyrir forleik, ætli það sé mikill munur á kynjunum? 

Kynhvöt og kynþörf fólks getur verið mjög misjöfn og er nokkuð algengt að mismikil kynhvöt fólks í samböndum geti verið vandamál. 

Það sama gildir um þörfina á forleik en þá er oft sagt að konur hafi meiri þörf á forleik en karlar. 

Spurningu vikunnar er að þessu sinni kynjaskipt og beint til allra þeirra sem stunda kynlíf. Fólk er beðið að svara þeirri könnun sem við á. 

Hversu mikilvægur er forleikur í kynlífi?

Konur svara hér: 

Karlar svara hér: 

Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir

„Kveikti kynorku sem var í svo miklum dvala mjög lengi“

„Þetta er ólýsanlegt og eitthvað sem við munum alltaf muna. Mjög stór þáttur í að bjarga hjónabandinu okkar.“ Þetta segir íslensk kona um reynslu sína og eiginmanns hennar af tantranuddi og tantra paranámskeiði sem þau ákváðu að prófa þegar hjónabandið var komið í þrot fyrir nokkrum árum.

„Tækni og typpastærð skipta ekki máli“

„Það er svo mikilvægt að þora að tjá sig og gefa leiðbeiningar í kynlífi, þá hætta aðrir hlutir að skipta máli, svona bull eins og typpastærð eða einhver sérstök tækni“. Þetta segir Sigga Dögg kynfræðingur í viðtali við Makamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×