Fótbolti

Albert spilaði sinn fyrsta leik fyrir Genoa

Atli Arason skrifar
Albert Guðmundsson í sínum fyrsta leik.
Albert Guðmundsson í sínum fyrsta leik. Getty Images

Albert Guðmundsson kom af varamannabekknum og spilaði 24 mínútur í sínum fyrsta leik fyrir Genoa í 1-1 jafntefli gegn Salernitana.

Bæði mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Genoa komst yfir með marki Mattia Destro áður en Federico Bonazzoli jafnaði fyrir Salernitana í uppbótatíma fyrri hálfleiks.

Genoa og Salernitana eru áfram í neðstu tveimur sætum deildarinnar eftir jafnteflið. Salernitana er á botninum með 12 stig og Genoa er í 19 sæti með 15 stig, 6 stigum frá öruggu sæti.

Salernitana spilar næst gegn toppliði AC Milan næsta laugardag á meðan Genoa spilar gegn Arnóri Sigurðssyni og félögum í Venezia degi síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×