Viðskipti erlent

Sting selur réttinn að lögum sínum til Uni­ver­sal

Atli Ísleifsson skrifar
Sting, sem heitir Gordon Sumner réttu nafni, var söngvari, bassaleikari og helsti lagasmiður The Police.
Sting, sem heitir Gordon Sumner réttu nafni, var söngvari, bassaleikari og helsti lagasmiður The Police. Getty

Enski tónlistarmaðurinn Sting hefur selt réttinn að öllum lögum sínum til tónlistarrisans Universal Music Group. Um er að ræða lög sem hann gaf út bæði í eigin nafni og mikill fjöldi sem hann samdi og gaf út með sveitinni The Police.

Sting bætist þar með í hóp fjölda heimsþekktra tónlistarmanna sem gert hafa áþekka samninga við útgáfufyrirtæki og fjárfestingafélög. Þannig hefur rétturinn að tónlist David Bowie, Fleetwood Mac, Tinu Turner, Bruce Springsteen, Bob Dylan, Neil Young, David Guetta og Shakiru verið seldur með þessum hætti á síðustu mánuðum.

Sting hefur á ferli sínum samið og gefið út fjölda þekktra laga, ýmist undir eigin nafni eða með The Police, þeirra á meðal Every Breath You Take, Roxanne, Englishman in New York, Desert Rose og Fields of Gold.

Hinn sjötugi Sting hefur á ferli sínum unnið til sautján Grammy-verðlauna og þriggja Brit-verðlauna.

Í frétt BBC er haft eftir Sting að það sé honum mjög mikilvægt að lagasafn sitt eigi sér heimili þar sem komið sé fram við það af virðingu og að það sé metið. Ekki einungis til að lögin haldi áfram að ná til eldri aðdáenda en einnig til að hægt sé að ná til nýrra hlustenda. Á ferli sínum hefur Sting lengst af verið á samningi hjá Universal.

Sting, sem heitir Gordon Sumner, var söngvari, bassaleikari og helsti lagasmiður The Police undir lok áttunda áratugarins og þeim níunda, áður en hann hóf sólóferil.


Tengdar fréttir

Bruce Spring­steen selur réttinn fyrir 65 milljarða

Bandaríski tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen hefur selt upptökur og útgáfurréttinn að öllu lagasafni sínu til Sony fyrir 500 milljónir Bandaríkjadala, um 65 milljarða króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×