Umræðan

Netverslun með áfengi er líka jafnræðis- og réttlætismál

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Í dag legg ég á Alþingi fram frumvarp til breytinga á lögum um netverslun með áfengi. Frumvarpið er að mestu efnislega samhljóða frumvarpi sem Áslaug Arna þáverandi dómsmálaráðherra kom fram með en hlaut ekki afgreiðslu. Frumvarpið felur ekki í sér stórkostlegar breytingar á fyrirkomulagi áfengissölu á Íslandi. Einhverjir gætu jafnvel spurt hvort á ferðinni sé einhvers konar málamyndafrumvarp til þess eins að veifa fánum frelsisins án þess þó að gefa sölu áfengis frjálsa eins og mörgum þykir sjálfsagt, mér þar með talinni.

Frelsi, jafnrétti og bjórlög

Frumvarpið er vissulega gott skref í frelsisátt en felur líka í sér mikilvægar breytingar í jafnræðisátt, bæði til að jafna hlut innlendra framleiðenda á við erlenda sem og jafnræði fólks til að nálgast vöruna. Með frumvarpinu yrði einnig undirstrikað lögmæti innlendrar netverslunar sem hefur verið óvissu háð.

Bandarískur bjór heim að dyrum en íslenskur fæst bara í Vínbúðinni

Netverslun með áfengi hefur verið leyfileg um langt skeið í formi heimildar Íslendinga til að kaupa áfengi erlendis frá. Þetta fyrirkomulag hefur þýtt að fólk hefur getað pantað sér bandarískan bjór heim að dyrum frá erlendum netverslunum vandkvæðalaust, en ekki innlendum. Íslenska bjórinn er bannað að selja annars staðar en í áfengisverslunum ríkisins - nema hann sé fluttur fyrst út svo hægt sé að panta hann erlendis frá. Um þann punkt ríkir í öllu falli óásættanleg lagaleg óvissa sem verður að skýra.

Þetta fyrirkomulag hefur þýtt að fólk hefur getað pantað sér bandarískan bjór heim að dyrum frá erlendum netverslunum vandkvæðalaust, en ekki innlendum.

Þetta þýðir augljósan aðstöðumun erlendum framleiðendum í hag á kostnað íslenskra brugghúsa og er auðvitað leikhús einhvers konar fáránleika sem erfitt að gera sér í hugarlund að hafi gerst vísvitandi. 

Íslensk bjór- og vínframleiðsla er búgrein sem hefur eflst mjög síðustu ár, ekki síst vegna ástríðu og áhuga þeirra sem að standa þrátt fyrir stöðugt stapp við reglugerðir og hömlur sem takmarka möguleika þeirra til að selja sínar ágætu vörur. Við þetta bætist svo sú augljósa staðreynd að það er engum á Íslandi sérstakur greiði gerður með því að erlendar netverslanir njóti reksturs og atvinnusköpunar og borgi skatta í öðrum ríkjum frekar en á Íslandi.

Íslensk bjór- og vínframleiðsla er búgrein sem hefur eflst mjög síðustu ár, ekki síst vegna ástríðu og áhuga þeirra sem að standa þrátt fyrir stöðugt stapp við reglugerðir og hömlur sem takmarka möguleika þeirra til að selja sínar ágætu vörur.

Valkostur við útibúastefnu

Hitt er svo ekki síður mikilvægt að frumvarpið felur í sér stóraukið jafnræði þeim til handa sem ekki geta eltst við útibúastefnu Vínbúðarinnar, sem vel að merkja hefur ekki séð ástæðu til að hefja heimsendingar úr sinni netverslun. 

Frumvarpið er landsbyggðarmál fyrir þau sem þurfa að aka tugi kílómetra til að komast í vínbúð. Það snýst um sjálfbærni hverfa fyrir þau sem ekki eiga bíla og þurfa að sækja áfengið í bílastæðabúðir sem komið er fyrir í útjöðrum hverfa og bæja. Það er réttindamál fyrir öll þau sem ekki eiga heimangengt t.d. vegna veikinda eða fötlunar en geta pantað langflestar aðrar vörur á netinu.

Þær raddir heyrast að öll frumvörp sem auka frelsi á nokkurn hátt í áfengismálum hvetji til aukinnar neyslu. Þó er það svo að samkvæmt tölum frá Landlæknisembættinu hafa fjölgun sölustaða Vínbúðarinnar og fjölgun vínveitingaleyfa undanfarin ár ekki skilað sér í samsvarandi aukningu á áfengisneyslu. 

Frumvarpið er landsbyggðarmál fyrir þau sem þurfa að aka tugi kílómetra til að komast í vínbúð. Það snýst um sjálfbærni hverfa fyrir þau sem ekki eiga bíla og þurfa að sækja áfengið í bílastæðabúðir sem komið er fyrir í útjöðrum hverfa og bæja.

Tilhugsunin um aukið frelsi virðist oft vekja fólki ugg en óttinn er þó yfirleitt ástæðulaus. Þær eru a.m.k. fáar raddirnar sem krefjast afnáms bjórlaganna sem heimiluðu sölu bjórs fyrir rúmum þrjátíu árum. Það sem meira er; ef tilgangurinn er að takmarka áfengisneyslu þá á það að ganga jafnt yfir alla og ekki vera háð lífsstíl, búsetu eða samfélagslegri stöðu.

Tilhugsunin um aukið frelsi virðist oft vekja fólki ugg en óttinn er þó yfirleitt ástæðulaus. Þær eru a.m.k. fáar raddirnar sem krefjast afnáms bjórlaganna sem heimiluðu sölu bjórs fyrir rúmum þrjátíu árum.

Þótt frelsismálin séu mér jafnan hugleikin þá er þetta mál í mínum huga ekki síður jafnræðis- og réttlætismál til hagsbóta fyrir neytendur. Mál sem ég vona að hljóti góðan hljómgrunn og brautargengi á yfirstandandi þingi.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Umræðan

Sjá meira


×