Atvinnulíf

Að halda fókus á ráðstefnum og fundum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þótt okkur langi til að vera vakandi og eldhress á fundum, ráðstefnum, námskeiðum eða málþingum eigum við það öll til að missa stundum einbeitinguna og fara hreinlega að hugsa um eitthvað allt annað.
Þótt okkur langi til að vera vakandi og eldhress á fundum, ráðstefnum, námskeiðum eða málþingum eigum við það öll til að missa stundum einbeitinguna og fara hreinlega að hugsa um eitthvað allt annað. Vísir/Getty

Hvort sem viðburður er haldinn rafrænt eða ekki, kannast margir við að missa einbeitinguna á ráðstefnum, málþingum, námskeiðum eða fundum.

Við dettum út og förum að hugsa um eitthvað allt, allt annað.

Gleymum okkur í símanum eða á netvafri.

Finnum fyrir þreytu.

Hér eru nokkur góð ráð til að hjálpa okkur með einbeitinguna.

  1. Sofðu vel nóttina á undan. Þetta á auðvitað við um alla daga en er sérstaklega gott að hafa í huga, ef ætlunin er að vera einbeitt á fundi, námskeiði, ráðstefnu eða fundi daginn eftir.
  2. Vertu búin/n að borða eitthvað. Að finna til svengdar gerir okkur erfiðara fyrir að halda fókus.
  3. Komdu blóðrásinni af stað áður en fundurinn eða viðburðurinn hefst. Þetta þarf ekkert endilega að þýða klukkutíma í ræktinni eða langur göngutúr því það að teygja vel úr sér og hreyfa vel útlimi, hrista sig, dansa, hoppa hjálpar. Auðvelt að gera þetta inni á baðherbergi án þess að nokkur sjái eða áður en haldið er af stað.
  4. Ef þú keyrir á viðburðinn er upplagt að hlusta á skemmtilega tónlist á leiðinni. Ef viðburðurinn er rafrænn er hægt að gera þetta heima fyrir eða í vinnunni. Nokkrar mínútur gera kraftaverk.
  5. Á ráðstefnum eða málþingum getum við búið okkur til hlutverk með því að nota skeiðklukkuna í símanum okkar og taka tímann á hverjum dagskrárlið.
  6. Skrifaðu niður nokkrar spurningar á blað um það sem þig langar að vita eða ert að gera þér vonir um að geta spurt um eða fá svör við.
  7. Vertu með blað og penna til að glósa eða hreinlega krota á. Þótt það sé bara krass eða Óli prik.
  8. Brostu og stilltu hugann inn á jákvæðnina áður en viðburðurinn eða fundurinn hefst.
  9. Settu þér markmið um að súmmera það helsta á blað eftir hvern dagskrárlið fyrir þig. Þó ekki nema eitt atriði sem þér fannst standa uppúr á fundinum, vera athyglisvert, eitthvað sem þú ætlar að kanna betur, muna eftir viðburðinn/fundinn.


Tengdar fréttir

Fimm einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að taka alvarlega

„Þó að rafræn samvera geti sannarlega gert okkur nánari, getur hún einnig orðið til þess að við finnum fyrir meiri einangrun. Þegar við verjum mörgum klukkustundum á viku á Teams-fjarfundum eða Zoom-fyrirlestrum getur það leitt til rafrænnar þreytu,“ segir Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.

Að vinna of mikið er í orðsins fyllstu merkingu að drepa okkur

Í nýlegri grein BBC er sagt frá niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar sem sýna að sífellt fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr of ungt í kjölfar of mikillar vinnu. Greinin ber yfirskriftina „How overwork is literally killing us.“ Ótímabært dauðsfall sem afleiðing af of mikilli vinnu, er algengara hjá körlum en konum. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×