Innherji

Mikilvægt að tryggja eðlilega samkeppni á flugvellinum, segir innviðaráðherra

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. vísir/vilhelm

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, fagnar áliti Samkeppniseftirlitsins um Isavia og mun taka tilmæli eftirlitsstofnunarinnar, sem miða að því að hafa hemil á háttsemi ríkisfyrirtækisins, til ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í skriflegu svari Sigurðs Inga við fyrirspurn Innherja.

Samkeppniseftirlitið birti nýlega álit um Isavia þar sem háttsemi ríkisfyrirtækisins er sögð vekja áleitnar spurningar um það hvernig Isavia nálgast samkeppni og samkeppnismál.

Eftirlitsstofnunin birtir ekki álit af þessu tagi nema það telji að ákvæði laga eða stjórnvaldsfyrirmæli stríði gegn markmiði samkeppnislaga eða torveldi frjálsa samkeppni. Stofnunin byggir álitið meðal annars á þeim fjölmörgu álitamálum sem hafa komið upp á liðnum árum í tengslum við háttsemi Isavia.

„Ráðuneytið fagnar þessu áliti og telur mikilvægt að tryggt sé eðlilegt samkeppnisumhverfi á Keflavíkurflugvelli, hvort sem það snýr að flugrekendum, þjónustuveitendum á flugvellinum eða rekstraraðilum verslana og veitingastaða, neytendum til góða,“ segir í svari Sigurðar Inga.

Samningar sem Isavia hefur gert um veitingaþjónustu og bankaþjónustu í flugstöðinni, og við rútufyrirtæki um aðstöðu við flugstöðina hafa komið á borð Samkeppniseftirlitsins á undanförnum árum. Auk þess hefur eftirlitið tekið fyrir samkeppnishamlandi fyrirkomulag við úthlutun á afgreiðslutímum til flugfélaga og stöðvað gjaldtöku Isavia á stæðum fyrir fólksflutninga vegna samkeppnishindrana.

Þá rifjaði Samkeppniseftirlitið upp að Samgöngustofa hefði í tvígang þurft að snúa við ákvörðunum Isavia vegna afturköllunar á leyfi flugafgreiðslufyrirtækis, og að Isavia hefði lagt stein í götu tveggja bílageymslufyrirtækja sem starfa í samkeppni við ríkisfyrirtækið.

Samkeppniseftirlitið hefur beint átta tilmælum til ráðherra málaflokksins sem miða að því að skapa heilbrigða umgjörð um starfsemi á Keflavíkurflugvelli, draga úr óhagkvæmni í rekstri hans og efla ferðaþjónustu.

„Ráðuneytið mun taka þau tilmæli sem snúa að málefnasviði þess til ítarlegrar skoðunar og leggja mat á hvernig best megi koma til móts við þau, m.a. í tengslum við undirbúning frumvarps til nýrra laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð,“ segir enn fremur í svari Sigurðar Inga.

Tilmæli Samkeppniseftirlitsins snú meðal annars að því að settar verði skýrari reglur um starfsemi Isavia sem girði fyrir að félagið geti misnotað einokunaraðstöðu sína á Keflavíkurflugvelli. Þessar reglur eru að hluta til á málefnasviði innviðaráðherra.

Rekstur Isavia er annars á ábyrgð stjórnar fyrirtækisins sem skipuð er af fjármála- og efnahagsráðherra, sem jafnframt fer með eignarhlut ríkisins í félaginu. Í áliti Samkeppniseftirlitsins er lögð áhersla á mikilvægi þess að stjórnvöld beiti virku eigendaaðhaldi gagnvart þeirri mikilvægu starfsemi sem fram fer á vettvangi Isavia og að horft verði til tilmæla stofnunarinnar við endurskoðun eigendastefnu Isavia ohf. 

Undir þetta tekur innviðaráðherra en ekki hefur enn borist svar frá Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um afstöðu hans til álitsgerðar og tilmæla Samkeppniseftirlitsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×