Bílar

Engar frekari ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Tengiltvinnbílum (e. Plug-in-Hybrid) var spáð miklum vinsældum á Norðurlöndum. Þeir nýtast þar sem lengra er á milli hleðslustöðva.
Tengiltvinnbílum (e. Plug-in-Hybrid) var spáð miklum vinsældum á Norðurlöndum. Þeir nýtast þar sem lengra er á milli hleðslustöðva. vísir/epa

Samkvæmt minnisblaði frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu munu ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla senn renna sitt skeið. Skattaívilnanir vegna vistvænna bíla hafa verið í gildi síðan 2011. 

Eftir áramót lækka VSK-ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla um helming, úr 960 þúsund krónum í 480 þúsund krónur. Þær verða svo endanlega afmáðar þegar 15 þúsund tengiltvinnbílar eru komnir á götuna, sem líklega verður á fyrri hluta næsta árs. Þeir voru 13.226 þann 7. desember.

Áfram verða í gildi ívilnanir fyrir hreina rafbíla og byggir sú nálgun meðal annars á reynslu Norðmanna þegar kemur að innleiðingu orkuskipta í samgöngum. Hreinir rafbílar hafa einungis notið ívilnana í Noregi og hefur þeim gengið best allra þjóða við rafvæðingu bílaflotans.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið féllst ekki á sameiginlegar tillögur Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins. Samtökin sendu sameiginlega umsögn

Þá segir í minnisblaðinu að „Með því að ívilna einungis hreinum rafmagnsbílum verða þeir mun hagkvæmari kostur fyrir þá sem vilja fara í orkuskipti. Samhljómur er um það meðal framleiðanda og annarra fagaðila að hreinorkubílar séu varanleg lausn og tengiltvinnbílar séu tímabundin lausn. Á heimsvísu eru tvöfalt fleiri nýir rafmagnsbílar að koma á markað en tengiltvinnbílar og áhersla bílaframleiðenda er á rafmagnsbíla. Gera má ráð fyrir að rafmagnsbílar verði æ samkeppnishæfari í úrvali og verði og VSK-ívilnunin mun styðja það enn frekar að hreinn rafmagnsbíll verði fyrir valinu. Tækni bílaframleiðanda, framboð, úrval og verð vistvænna bíla og viðhorf almennings eru allt þættir sem hafa breyst hratt á sl. tveimur árum.“

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.Vísir/Vilhelm

Ívilnanir fyrir tengiltvinnbíla eru áætlaðar 3,5 milljarðar króna í ár. Tekjutap ríkisins vegna ívilnananna er samkvæmt minnisblaðinu „ígildi fórnaðra möguleika á að veita framlög til annarra aðgerða að sama markmiði, svo sem til hleðsluinnviða, rafvæðingar hafna eða annars.“

„Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur að framlenging á VSK-ívilnun tengiltvinnbíla yrði ekki kostnaðarskilvirk aðgerð í loftslagsmálum. Í hið minnsta ætti ekki að gera slíka lagabreytingu án fullnægjandi endurmats á stöðunni, valkostum, árangri og kostnaði,“ segir enn frekar í minnisblaðinu.

Hæst er hlutfall rafmagns- og tengiltvinnbíla í Garðabæ og Seltjarnarnesi eða um 16% á meðan á höfuðborgarsvæðinu er hlutfallið 11% og á landsbyggðinni 5%.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×