Tíu leikmenn Sevilla héldu út gegn Börsungum

Börsungum mistókst að nýta sér liðsmuninn í kvöld.
Börsungum mistókst að nýta sér liðsmuninn í kvöld. Xavier Bonilla/NurPhoto via Getty Images

Sevilla og Barcelona gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Heimamenn í Sevilla léku seinustu 35 mínútur leiksins manni færri, en Börsungar náðu ekki að nýta sér liðsmuninn.

Alejandro Gomez kom heimamönnum yfir eftir rúmlega hálftíma leik eftir stoðsendingu frá fyrrum Barcelona-manninum Ivan Rakitic.

Ousmane Dembele lagði upp jöfnunarmark Börsunga fyrir Ronald Araujo á seinustu m+ínútu fyrri hálfleiks og staðan því 1-1 þegar gengið var til búningsherbergja.

Sevilla missti mann af velli á 64. mínútu þegar að Jules Kounde var sendur í sturtu fyrir afar kjánalegt brot. Jordi Alba ýtti þá létt í bakið á Kounde þegar hann var að taka upp boltann til að taka innkast. Í staðin fyrir að leiða það hjá sér þá fauk í Kounde sem ákvað að grýta boltanum í andlitið á Alba.

Þrátt fyrir liðsmuninn tókst Börsungum ekki að finna sigurmarkið og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.

Sevilla situr í öðru sæti deildarinnar með 38 stig eftir 18 leiki og fer inn í jólahátíðina fimm stigum á eftir toppliði Real Madrid. Börsungar hefðu getað komið sér í Meistaradeildarsæti með sigri, en liðið situr þess í stað í sjöunda sæti deildarinnar með 28 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira