Viðskipti erlent

Iceland­ver­se valin ein af bestu aug­lýsingum ársins

Eiður Þór Árnason skrifar
Jörundur Ragnarsson í gervi Zack Mosbergssonar.
Jörundur Ragnarsson í gervi Zack Mosbergssonar. Skjáskot

Auglýsing Íslandsstofu hefur verið valin fjórtánda besta auglýsing ársins 2021 af bandaríska fagtímaritinu Adweek. 

Neðar á listanum má finna mörg stærstu vörumerki heims á borð við Pepsi, Nike og Doritos. Sigurvegarinn þetta árið er bandaríska tryggingafélagið Geico og silfrið hlýtur skyndibitarisinn McDonalds.

Icelandverse-auglýsing Íslandsstofu hefur vakið mikla athygli um allan heim en þar er gert stólpagrín að fyrirhuguðum sýndarveruleikaheimi fyrirtækisins Meta, sem hét áður Facebook.

Í auglýsingunni bregður leikarinn Jörundur Ragnarsson sér í hlutverk Zack Mosberssonar og kynnir þar fyrirbæri sem kallast Icelandverse. Á það að vera „raunverulegur raunveruleiki án kjánalegra gleraugna.“ Þar er vísað til sýndarveruleikaheims Meta sem bera á nafnið Metaverse.

Í rökstuðningi sínum nefnir Adweek að skopstælingin á Mark Zuckerberg, forstjóra Meta, hafi verið svo vel heppnuð að forstjórinn sjálfur hafi lýst yfir ánægju sinni.

Þá hafi yfir sex milljónir manna séð myndbandið fyrstu vikuna þrátt fyrir að Íslandsstofa hafi varið sáralitlu í birtingu. Í lok vikunnar höfðu um 800 umfjallanir birst um auglýsinguna í erlendum miðlum á borð við Economist, Forbes, CNBC, Independent og Sky News.

Náðu markmiði sínu

Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu, sagði í samtali við fréttastofu í nóvember að Íslandsstofa hafi aldrei fengið jafn sterk viðbrögð við auglýsingaherferð og að verðmæti birtinga í erlendum fjölmiðlum væri ómetanlegt.

Jákvæð viðbrögð frá fólki hafi ekki látið á sér standa og margir lýst yfir áhuga á því að ferðast til Íslands. Þar með sé markmiði markaðherferðarinnar náð.

Peel auglýsingastofa ásamt M&C Saatchi Group sá um hugmynd og handrit auglýsingarinnar en Allan Sigurdsson leikstýrði. Hún kostaði tíu milljónir í framleiðslu.

Hér fyrir neðan má sjá þær tvær auglýsingar sem voru hlutskarpastar í vali Adweek þetta árið.


Tengdar fréttir

Tíu milljóna auglýsing en birtingin nánast ókeypis

Íslandsstofa hefur aldrei fengið sterkari viðbrögð við auglýsingaherferð og við þeirri nýjustu, Facebook-ádeilunni Icelandverse. Verðmæti birtinga í erlendum fjölmiðlum sé ómetanlegt. Stjarna auglýsingarinnar kveðst ekki ætla að halda Zuckerberg-klippingunni við.

„Það var ekki leiðinlegt að sjá að hann var búinn að sjá þetta“

Ný auglýsing Íslandsstofu hefur vakið töluverða athygli þar sem gert er létt grín að nýjum sýndarveruleikaheimi Mark Zuckerberg. Forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu segir viðbrögðin hafa verið vonum framar en auglýsingin hefur meðal annars náð til Zuckerberg, sem tekur vel í grínið.

Zucker­berg tekur háðinu með stæl og hlakkar til að heim­sækja „Iceland­ver­se“

Inspired by Iceland birti myndbandsauglýsingu á Facebook í gær þar sem kynnt er til sögunnar „the Icelandverse“. Í myndbandinu fer persóna að nafni Zack Mossbergsson, yfirmaður framtíðarsýnar, meðal annars yfir það hvernig hægt er að „tengja heiminn“ án þess að vera „super weird“, eða stórskrýtinn á góðri íslensku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×