Jól

Jólalag dagsins: Selma og Vignir flytja River

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Selma Björnsdóttir og Vignir Snær Vigfússon eiga jólalag dagsins á Lífinu.
Selma Björnsdóttir og Vignir Snær Vigfússon eiga jólalag dagsins á Lífinu. Vísir

Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Lífið ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safninu á hverjum degi fram að jólum. Í dag, 16. desember, bjóðum við upp á Joni Mitchel lagið River. 

Þetta er ekki týpískt jólalag, en er jólalag engu að síður. Textinn er um hátíðarnar og söngkonan syngur um að vera leið yfir því að hún mun ekki eyða jólunum með sínum fyrrverandi. Hana dreymir um að skauta í burt frá öllu. Talið er að söngkonan hafi samið lagið eftir sambandslitin við Graham Nash en þau voru par frá 1968 til 1970. 

Selma Björnsdóttir og Vignir Snær Vigfússon fluttu lagið á aðventukvöldi Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Viðburðurinn var sýndur í streymi hér á Vísi fyrir jólin á síðasta ári. 


Tengdar fréttir

Sagan á bak við vin­sælasta jóla­lag allra tíma

Það eru yfirgnæfandi líkur á því að þú hafir einhvern tímann sungið hástöfum með laginu All I Want for Christmas is You sem söngkonan Mariah Carey gerði frægt árið 1994. Lagið hefur verið eitt vinsælasta jólalag í heimi í 27 ár og hefur það þrisvar sinnum komist í heimsmetabækur Guinness. En hver er sagan á bak við þetta ódauðlega lag?








×