Innherji

Ríkisábyrgðin hefur verið mikilvægur öryggisventill að mati Icelandair

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Ádráttartímabilið er 24 mánuðir frá september 2020.
Ádráttartímabilið er 24 mánuðir frá september 2020. VÍSIR/VILHELM

Ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair hefur verið mikilvægur öryggisventill fyrir íslenska flugfélagið þrátt fyrir að félagið hafi ekki þurft að draga á línuna. Þetta kemur fram í svari flugfélagsins við fyrirspurn Innherja um hvort það hafi þurft eða muni hugsanlega þurfa að draga á lánalínuna áður en ríkisábyrgðin rennur út næsta haust.

„Eins og fram hefur komið í uppgjörstilkynningum er lausafjárstaða félagsins sterk og því hefur ekki verið þörf á að draga á línuna. Það er von félagsins að ekki þurfi að draga á lánalínuna en hún hefur verið mikilvægur öryggisventill á þessum síbreytilegu óvissutímum,“ segir í svari Icelandair.

Í aðdraganda hlutafjárútboðs Icelandair haustið 2020 náðist samkomulag milli flugfélagsins og stjórnvalda um ríkisábyrgð á allt að 120 milljóna dala lánalínu, jafnvirði um 15,8 milljarða króna miðað við núverandi gengi, sem yrði veitt af Íslandsbanka og Landsbankanum. Ádráttartímabilið yrði tvö ár frá september 2020 og ábyrgðin myndi ná til yfir 90 prósenta af þessum lánum.

Skilmálar ríkisábyrgðarinnar voru þeir að eigið fé Icelandair héldist yfir 2 prósentum og þá yrði sett hámark á mánaðarlegan ádrátt á línuna að fjárhæð 20 milljónir Bandaríkjadala. Óheimilt yrði að draga á lánalínuna nema aðrir kostir væru fullreyndir.

Innherji greindi nýlega frá umsögn Félags atvinnurekenda um fjárlagafrumvarpið en þar var lagt til heimildin til að veita Icelandair ríkisábyrgð yrði felld út úr fjárlagafrumvarpinu. Benti félagið á að veiting ábyrgðarinnar fæli í sér áhættu fyrir skattgreiðendur auk þess að veita Icelandair samkeppnisforskot á keppinautinn Play air, í formi lægri fjármagnskostnaðar.

Icelandair segir að lánalínan hafi verið mikilvægur hlekkur í því að klára fjárhagslega endurskipulagningu félagsins haustið 2020.

„Lánalínan hjálpaði félaginu í samningaviðræðum við kröfuhafa og aðra aðila með það að markmiði að tryggja áframhaldandi rekstrargrundvöll félagsins, verja störf og leggja grunninn að endurreisn íslenskrar ferðaþjónustu eftir að hún fór niður í algjört lágmark vegna COVID-19,“ segir í svari flugfélagsins.

„Í kjölfar þess að endurskipulagningunni lauk með farsælum hætti hefur Icelandair haldið uppi tíðum flugsamgöngum, skilað tugum milljarða til ríkisins í gegnum skatta og opinber gjöld ásamt umtalsverðum afleiddum áhrifum.“


Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×