Innherji

Viðskiptaverðlaun Innherja og 1881 veitt á miðvikudag

Ritstjórn Innherja skrifar
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir er stjórnarmaður velgjörðafélagsins 1881, en félagið er einn bakhjarla verðlaunahátíðarinnar.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir er stjórnarmaður velgjörðafélagsins 1881, en félagið er einn bakhjarla verðlaunahátíðarinnar.

Viðskiptaverðlaun Innherja og velgjörðarfélagsins 1881 verða veitt á miðvikudaginn, þar sem fólk og fyrirtæki eru verðlaunuð fyrir góðan árangur. Dómnefnd Innherja byggir val sitt á tillögum sem bárust frá tugum manna, stjórnendum, fjárfestum og öðrum sérfræðingum úr viðskiptalífinu. Viðskiptaverðlaunin eru nú haldin í fyrsta sinn, en verða árviss viðburður, þar sem allur ágóði rennur til góðs málefnis.

„Við ætlum okkur að fagna því sem vel er gert," segir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarmaður í 1881 og einn helsti hvatamaður verðlaunanna. 

„Atvinnulífið hefur þurft að ganga í gegnum ýmsar þrengingar undanfarin tvö ár og það hefur verið beinlínis aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig fólk og fyrirtæki hafa tekist á við erfiðleikana og sumum hverjum meira að segja tekist að vaxa. Það er full ástæða til að verðlauna það sem vel er gert. Í því felst bæði viðurkenning og hvatning,“ segir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fjárfestir og stjórnarmaður í 1881.

Ólöf Skaftadóttir, Hörður Ægisson og Þorsteinn Friðrik Halldórsson skipa ritstjórn Innherja.

Viðskiptamiðillinn Innherji er svo annar bakhjarl verðlaunanna en fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir. „Löng hefð er fyrir því hér á landi að fjölmiðlar veiti verðlaun fyrir viðskipti ársins og útnefni viðskiptamann ársins og oft koma margir til greina. Við vildum útvíkka hugmyndina og veita verðlaun í fleiri flokkum,” segir Ólöf og Hörður tekur undir.

Viðskiptaverðlaun Innherja og 1881 verða haldin í fyrsta sinn á miðvikudag.

„Flokkarnir eru fjölbreyttir og endurspegla ólíka kima atvinnulífsins. Við ætlum að veita verðlaun í átta flokkum,” útskýrir Hörður, en flokkarnir eru Spámaðurinn, Kaupmaðurinn, Samfélagsstjarnan, Tækniundrið og Rokkstjarnan. 

Auk þeirra verða verðlaun veitt fyrir viðskipti ársins, viðskiptamaður ársins verður útnefndur og sérstök heiðursverðlaun íslensks atvinnulífs veitt. Tilnefningarnar í flokkunum og skilgreiningar á flokkum má sjá í tengdum greinum.

Mikið verður lagt í hátíðina, sem ekki var blásin af þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Sóttvarnir verði viðhafðar og öllum reglum fylgt. „Við, eins og atvinnulífið, ætlum að aðlaga okkur að aðstæðum," segir Svanhildur Nanna.

Stofnendur 1881 vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins

Velgjörðafélagið 1881 varð til á árinu, en hugmyndin að stofnun félagsins kviknaði hjá hópi fólks á Vinnustofu Kjarval í miðbæ Reykjavíkur í miðjum heimsfaraldri.

„Ég held að margir hafi á undanförnum 20 mánuðum velt fyrir sér stórum spurningum og sjái heiminn í öðru ljósi en áður. Það var að minnsta kosti raunin með okkur sem stofnuðum 1881 og við viljum leggja okkar af mörkum til að bæta samfélagið okkar. 

Það ætlum við að gera með ýmsum hætti, styðja við einstök verkefni eða baráttumál og hvetja aðra til að gera það sama. Í fyrsta fjáröflunarverkefninu okkar söfnuðum við fé fyrir Rjóðrið, hjúkrunar- og endurhæfingardeild fyrir langveik og langveik fötluð börn, en það verkefni skilaði yfir 10 milljónum króna.

Viðskiptaverðlaun Innherja 2021: Sidekick Health, Lucinity og Arion tilnefnd sem Tækniundur ársins

Sannfærð um að næsta Össur eða Marel sé þarna úti

„Verðlaunahátíðin í næstu viku er jafnframt fjáröflunarviðburður og við ætlum okkur að safna peningum til að styðja við frumkvöðla- og sprotastarf. Slíkt starf er ómetanlegt og við sjáum áhrif þess á atvinnulífið okkar. 

Stærstu fyrirtæki landsins spruttu úr slíkum farvegi fyrir nokkrum áratugum og enn í dag eru töfrar að gerast í þá veru. Í þessari viku höfum við til dæmis séð fréttir um að tvö sprotafyritæki – Kerecis og Controlant – séu um hundrað milljarða virði! 

Viðskiptaverðlaun Innherja 2021: Ásta, Sindri og Arnar tilnefnd í flokknum Kaupmaður ársins

Það eru margar spennandi hugmyndir þarna úti og við viljum vökva þann frjóa jarðveg. Ég er sannfærð um að næsta Marel eða Össur er þarna úti, einhvers staðar,“ segir Svanhildur Nanna.


Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×