Jól

Jólalag dagsins: Eyþór Ingi flytur Ó, helga nótt

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eyþór Ingi á jólalag dagsins á Lífinu.
Eyþór Ingi á jólalag dagsins á Lífinu. Stöð 2

Það styttist óðfluga í jólin. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Lífið ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safninu á hverjum degi fram að jólum. Í dag, 13. desember, bjóðum við upp á lagið Ó, helga nótt,

Söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson flutti lagið á jólatónleikum Fíladelfíu árið 2014 sem sýndir voru á Stöð 2. Upptakan er ein sú allra vinsælasta í flokknum Jól á sjónvarpsvef Vísis. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Jólakúlur, glimmer og Disney World

Það styttist í jólin og er ljóst að Íslendingar eru flestir að komast í smá jólaskap. Þeir sem ekki eru búnir að finna jólaandann geta skoðað allt jólaefnið okkar hér á Lífinu, en við birtum daglega jólalög, jólaviðtöl og fleira skemmtilegt.

Jóla­­­molar: Er ekki týpan sem skiptir gjöfum

Selma Björnsdóttir er einstaklega mikið jólabarn. Það er nóg að gera hjá henni í desember en fyrir utan almennan jólaundirbúning syngur hún á alls þrettán jólatónleikum ásamt því að stýra athöfnum hjá Siðmennt og leikstýra. Þá fer hún einnig með hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Verbúðinni sem frumsýnd verður á RÚV á annan í jólum.








×