Lífið ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safninu á hverjum degi fram að jólum. Í dag, 11. desember, bjóðum við upp á lagið Glæddu jólagleði í þínu hjarta.
Söngkonan Sara Pétursdóttir, sem í dag er betur þekkt sem söngkonan Glowie, söng lagið í prufum fyrir Jólastjörnu Björgvins Halldórssonar árið 2012. Sara var þá aðeins fimmtán ára gömul en algjört hæfileikabúnt. Í dag er hún á samning hjá Sony.
Lagið Glæddu jólagleði í þínu hjarta er íslensk útgáfa Ómars Ragnarssonar af klassíska jólalaginu Have Yourself a Merry Little Christmas.