Innherji

Stjórnmálin tóku yfir topplista vikunnar

Ritstjórn Innherja skrifar
Veður var ekki með besta móti á Bessastöðum þar sem fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar stjórnar fór fram í byrjun viku.
Veður var ekki með besta móti á Bessastöðum þar sem fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar stjórnar fór fram í byrjun viku. Vísir/Vilhelm

Stjórnmálin áttu svolítið vikuna enda stjórnarsáttmáli undirritaður, ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur mynduð og fjárlög lögð fram.

Þá flutti forsætisráðherra stefnuræðu sína í vikunni.

Því skal engan undra að stjórnarflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Framsóknarflokkur skipi efstu þrjú sæti vikunnar - og Alþingi komi þar á eftir.  Mikið var skrafað og rætt um skipan ríkisstjórnarinnar en formaður Sjálfstæðisflokksins þótti koma nokkuð á óvart í ráðherrakapalnum. 

Hástökkvari vikunnar er án efa dómsmálaráðuneytið sem skipar tíunda sæti listans, en óvænt skipan Jóns Gunnarssonar, nýs ráðherra málaflokksins, á aðstoðarmanni vakti nokkra athygli. Það var Innherji sem greindi fyrst frá ráðningu Brynjars Níelssonar í ráðuneytið og sitt sýndist hverjum um mannvalið.


Innherji er nýr sjálfstæður áskriftarmiðill innan Vísis sem mun einkum beina kastljósinu að viðskiptalífinu, efnahagsmálum og stjórnmálum. Fyrst um sinn verður efnið endurgjaldslaust og aðgengilegt öllum á Vísi en með tímanum verður einungis hægt að nálgast Innherja gegn greiðslu. Áhersla er lögð á vandaðar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og hlaðvörp auk þess sem Innherja er ætlaður að vera vettvangur skoðanaskipta fólks úr atvinnulífinu og stjórnmálum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×