Neytendur

Gagnrýnir tilboð TM: „Vátryggingar eru ekki skyndivara“

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir ljóst að lag sé til lækkunar fyrst að tryggingarfélagið gat boðið upp á góðan afslátt. 
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir ljóst að lag sé til lækkunar fyrst að tryggingarfélagið gat boðið upp á góðan afslátt.  Vísir/Baldur

Neytendastofa er nú með til skoðunar nokkrar tilkynningar vegna tilboðs tryggingafélagsins TM síðastliðinn mánudag. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda segir tilboðið hafa verið á skjön við neytendalög og gagnrýnir tryggingarfélögin fyrir ofurhátt verðlag.

Tilboðið sem um ræðir var auglýst í tengslum við tilboðsdaginn Cyber Monday, eða stafrænan mánudag. Í tilboðinu fólst 30 prósent afsláttur af tryggingum þennan eina dag og gilti aðeins fyrir viðskiptavini annarra tryggingarfélaga

Matthildur Sveinsdóttir, sviðstjóri á neytendaréttarsviði Neytendastofu, segir þau hafa fengið nokkrar tilkynningar um tilboð TM þennan umrædda dag, til að mynda frá neytendum, sem og Neytendasamtökunum.

„Við höfum ekki áður fengið kvartanir eða ábendingar út af tryggingafélögum en við höfum svo sem fengið ýmsar ábendingar út af tilboðum á þessum dögum. Þannig þetta er bara til skoðunar hjá okkur, hvort það sé tilefni til einhverra frekari aðgerða,“ segir Matthildur.

Hún bendir á að samkvæmt lögum beri fyrirtækjum að sýna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða.

„Það er jafnframt skylda að kynna fyrir neytendum bæði fyrra verðið og afsláttinn, eða fyrra verðið og tilboðsverðið, svo að neytendur geti með góðum hætti áttað sig á því hversu mikil verðlækkunin er,“ segir Matthildur.

TM bauð nýjum viðskiptavinum upp á 30 prósent afslátt af tryggingum síðastliðinn mánudag.Mynd/Facebook

Greinilega lag til lækkunar

Félag íslenskra bifreiðareigenda sendi einnig erindi á Neytendastofu vegna málsins í gær en þau telja tilboðið á skjön við neytendalög. Engin leið væri fyrir nýjan viðskiptavin að sjá fyrra verð á því iðgjaldi sem honum stóð til boða í tilboði TM þar sem tryggingafélagið birtir ekki verðskrá.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir þau ítrekað hafa gagnrýnt tryggingarfélögin fyrir leynd yfir verði og gríðarlega há iðgjöld. Eins og staðan er í dag sé nánast ómögulegt að bera verð mismunandi tryggingarfélaga saman.

„Það er ljóst að það er greinilega lag til lækkunar fyrst að menn geta boðið á einhverju dagstilboði svona góðan afslátt,“ segir Runólfur.

„Svo auðvitað skýtur það skökku við að neytendur viti í rauninni ekkert hvað þeir eru að bjóða því þeir hafa ekki upplýsingar um verðið sem í boði er fyrir því það er allt saman persónubundið,“ segir Runólfur en hann segir einnig athyglisvert að þeir sem voru þegar viðskiptavinir hjá fyrirtækinu áttu þess ekki kost að nýta sér tilboðið.

Hann furðar sig enn fremur á því að tryggingarfélög bjóði upp á skyndiafslátt líkt og hver önnur verslun.

„Vátryggingar eru ekki skyndivara heldur eru þær eitthvað sem menn þurfa að gefa sér tíma til að liggja yfir og kynna sér skilmála og svo framvegis. Þannig við teljum bara eðlilegt að þetta sé skoðað af þar til bærum yfirvöldum hér á landi,“ segir Runólfur.

Forstjóri TM var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni síðastliðinn mánudag þar sem hann fór yfir tilboðið. 


Tengdar fréttir

FÍB gagn­rýnir milljarða arð­greiðslu Sjó­vár

Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir tryggingarfélagið Sjóvá í grein sem birt var á vefsíðu félagsins í gær. Framkvæmdastjóri FÍB segir ljóst að gríðarlegur hagnaður tryggingafélagsins sé ekki að skila sér til viðskiptavina.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×