Lífið

Stjörnu­lífið: Jóla­tón­leikar, fegurðar­sam­keppnir og skvísu­kvöld

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi. Samsett

Fyrsti í aðventu var í gær og Íslendingar eru svo sannarlega að komast í jólaskap. Jólaföndur, jólatónleikar og jólaferðir til útlanda eru á meðal þess sem þekktir Íslendingar eyddu síðustu dögum í. 

Friðrikka Hjördís, betur þekkt sem Rikka, hélt upp á brúðkaupið sitt með veislu hér á landi á laugardag. Hjónin eru búsett erlendis og giftu sig 2. október en náðu um helgina að fagna með sínu fólki. Á meðal gesta voru fyrrum samstarfsmenn Rikku, þau Eva Laufey Kjaran og Logi Bergmann.

Vinkonurnar Birgitta Haukdal, Sigrún Ósk, Ragnhildur Steinunn og Edda Hermanns fóru til London saman um helgina.

Binni Glee skellti sér á svítu á Center Hotels, Þingholtsstræti og var alveg „living“. Hann kíkti svo í sunnudags-tacos á Borg 29 með Bassa Maraj og fleiri góðum. Hann endaði helgina á jólatónleikum Jóhönnu Guðrúnar þar sem hann deildi í story að hann hafi upplifað mikla gæsahúð.

Elísa Gróa lagði í gær af stað til Ísrael þar sem hún keppir fyrir Íslands hönd í fegurðarsamkeppninni Miss Universe. Í viðtali á Lífinu um helgina líkti Elísa Gróa þessu við að komast á Ólympíuleikana. 

Manuela Ósk framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland fór í brunch á Sjáland og hélt upp á 85 ára afmæli ömmu sinnar á sunnudeginum með fjölskyldunni

Hugrún Egilsdóttir fegurðardrottning er líka stödd erlendis. Hún er í Puerto Rico þar sem hún keppir fyrir Íslands hönd í Miss World. 

Söngkonan og leikstjórinn Selma Björns er mikið jólabarn og bauð vel völdum vinum heim á fyrsta í aðventu. Leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson voru á meðal gesta. Sömuleiðis Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors. Gunnar Helgason rithöfundur og Björk Jakobsdóttir leikkona létu sjá sig og sömuleiðis söngvararnir og vinirnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen.

Elísabet Gunnars valdi notalegan aðventuföstudag í stað þess að taka þátt í brjálæðinu sem myndaðist á svörtum föstudegi í Reykjavík.

Tónlistarkonurnar Hildur og Cell 7 sem mynda hljómsveitina RED RIOT skelltu sér á VEÐUR bar á laugardagskvöld og skáluðu fyrir lífinu.

Birgitta Líf skemmti sér á Litlu Jólum World Fit á laugardags kvöld. Í vikunni var hún í útimyndatökum fyrir World Class. 

Inga Lind gerði jólakransa með vinkonum sínum um helgina sem er árlegur viðburður hjá þeim.

„Þá mega jólin koma!“

Jóhanna Guðrún söngkona er spennt yfir því að jólatörnin er hafin. Hún hélt jólatónleika í Háskólabíói í gær og gestasöngvarar voru Sverrir Bergmann og Eyþór Ingi. Í helgarviðtali Lífsins sagði hún frá því að hún elski allt við þennan árstíma, þá sérstaklega jólalögin, glimmerið og glamúrkjólana.

Friðrik Ómar hélt líka tvenna jólatónleika um helgina. Tónleikarnir fóru fram í Salnum í Kópavogi. . Jógvan Hansen, Ragnheiður Gröndal og Selma Björns voru í aðalhlutverkum ásamt Friðrik. Með þeim á sviðinu var hljómsveit skipuð reynsluboltum úr músíkheiminum. Öll lögin voru venju samkvæmt flutt á íslensku en Friðrik Ómar hefur undanfarin ár staðið fyrir jólatónleikunum bæði í Salnum og í Hofi á Akureyri.

Páll Óskar hélt ferna jólatónleika í Háteigskirkju um helgina og þurfti að fara í hraðapróf áður eins og allir tónleikagestir.

Rithöfundurinn Ragnar Jónasson skellti sér á Chelsea - Man United fótboltaleik í stórborginni London og naut lífsins í góðra vina hópi

Fanney Ingvars skellti sér á Duck & Rose með góðum konum. 

Sunneva Einars hélt upp á níu ára afmæli fjórfætts vinar. Hundurinn hennar heitir því skemmtilega nafni, Bruce Wayne.  Hún skellti sér líka í alvöru skvísu-dinner á veitingastaðnum Punk með bloggaranum Sigríði Margréti og Hrefnu Rós.

Rithöfundurinn Kamilla Einars hélt uppi stemningu á Snæfellsnesi þar sem hún var með krassandi upplestur í norska húsinu á Stykkishólmi.

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir átti gott Sarah Jessica Parker augnablik um helgina. 

DJ Karítas skellti sér á tónleika hjá rokk hljómsveitinni Sign á laugardagskvöld. Uppselt var á tónleikana á innan við 90 mínútum og færri komust að en vildu.

Eva Ruza heldur áfram að skemmta sér vel með fjölskyldunni á Tenerife. 

Brynja Dan fór á förðunarnámskeið og sýndi stolt frá útkomunni á Instagram.

Hún hélt líka þakkargjörðarveislu fyrir vinkonurnar, JólaDan. 

Ofurtöffarinn DJ Sóley fór með fjölskyldunni í leikhús á 9 Líf.

Síðasti þáttur af Stóra sviðinu var sýndur á föstudag. Auðunn Blöndal og Steindi fengu með sér Bríeti og Aron Can.

Linda Pétursdóttir birti af sér fallega mynd.

Helgi Ómarsson bloggari og ljósmyndari er í Kaupmannahöfn. Hann var í einlægu viðtali í Einkalífinu á Vísi fyrir helgi.

Bubbi Morthens tilkynnti að hann ætlar að streyma frá Þorláksmessutónleikunum í Hörpu.

Andrea Röfn birti fallega mynd af sér með eiginmanninum Arnóri Ingva. Ljósmyndarinn var Aþena Röfn dóttir þeirra. 

Ása Regins og Emil Hallfreðs eru stödd í Veróna á Ítalíu. Þau tilkynntu um helgina að þau munu fljótlega opna nýjan veitingastað á Suðurlandsbraut, þar sem áður var Eldsmiðjan.

Ólafur Elíasson minntist Virgil Abloh sem lést um helgina eftir tveggja ára baráttu við krabbamein. Þakkaði hann hönnuðinum fyrir vináttuna og innblásturinn.

Damon Albarn birti fallega mynd af sér sem tekin var nálægt heimili hans í Grafarvogi.

Röntgen endurvekur hinn sögulega Mánudagsklúbb í aðeins eina kvöldstund í kvöld.

GusGus spiluðu um helgina á JazzClub Hipnoza í Katowice í Póllandi.

Katrín Jakobsdóttir birti mynd af flotta fjölmiðlahópnum sem var viðstaddur þegar ný ríkisstjórn var kynnt á Kjarval í gær. 

FKA opnuðu nýtt útibú á Suðurnesjum um helgina. Eliza Reed mætti og sagði nokkur orð.

Knattspyrnukonan Sara Björk fór í gönguferð með barnavagninn í Hafnarfirði í gær. Hún tilkynnti í vikunni að drengurinn hennar hefur fengið nafnið Ragnar Frank Árnason.

Aron Can birti skemmtilega myndasyrpu. Hann keppti á föstudag í lokaþættinum af Stóra sviðinu á Stöð 2. 

Eins og kom fram í síðustu viku fór Áslaug Arna í klettastökk og hoppaði meðal annars fram af fossi í frostinu. Fyrr í dag tók hún við nýjum ráðherratitli og er nú nýr nýsköpunar-, iðnaðar- og háskólaráðherra.


Tengdar fréttir

Skipuleggur sig út frá því sem skiptir mestu máli

„Ég er virkilega spennt og hlakka mikið til, þetta verður mjög skemmtilegt,“ segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir sem á sunnudag heldur útgáfutónleika í Háskólabíói fyrir plötu sína Jól með Jóhönnu.

Eins og að komast á Ólympíuleikana

Á sunnudag leggur fegurðardrottningin Elísa Gróa Steinþórsdóttir af stað til Ísrael þar sem hún mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe. Vegna heimsfaraldursins er hugsanlegt að fjölskyldan nái ekki að koma út og horfa á hana á sviðinu þann 13. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×