Makamál

Fjörutíu prósent karla segjast yfirleitt sýna áhuga í gegnum skjáinn

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Samkvæmt könnun Makamála segjast 35% kvenna og 40% karla yfirleitt sýna ókunnugri manneskju áhuga í gegnum samfélagsmiðla eða stefnumótaforrið.
Samkvæmt könnun Makamála segjast 35% kvenna og 40% karla yfirleitt sýna ókunnugri manneskju áhuga í gegnum samfélagsmiðla eða stefnumótaforrið. Getty

„Hæ, hvað segirðu? Ég sá þig á tónleikunum í gær og ákvað reyna að finna þig hér á Facebook!“

Með tilkomu samfélagsmiðla og stefnumótaappa hefur umhverfi tilhugalífsins svo sannarlega breyst. Óhjákvæmilega. 

Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis á hvaða vettvangi þeir sýna ókunnugri manneskju áhuga og var könnunin kynjaskipt. 

Velt var upp hugleiðingum um það hvort að fólk væri smátt og smátt að missa hæfnina í því að kynnast augliti til auglitis og notast frekar við tæknina þegar kemur að því að stíga í vænginn við einhvern, byrja samtalið. 

Samkvæmt niðurstöðunum segist rúmlega þriðjungur kvenna, eða 35%, að það sýni áhuga oftast í gegnum samfélagsmiðla eða stefnumótaöpp, á móti 40% karla. 

Smæð samfélags okkar hér á þessari litlu eyju gerir það að verkum að það þarf yfirleitt ekki mikla rannsóknarvinnu til þess að finna út hver manneskja er sem þú hittir á förnum vegi. 

Ekki mátti sjá mikinn mun á svörum kynjanna en ef eitthvað er hægt að marka niðurstöðurnar eru fleiri konur en karlar sem segjast yfirleitt ekki eiga frumkvæðið að fyrstu samskiptunum. 


Niðurstöður*

  • Konur:
    • Oftast í gegnum samfélagsmiðla eða stefnumótaforrit - 35%
    • Oftast í eigin persónu - 30%
    • Á yfirleitt ekki frumkvæðið að fyrstu samskiptum - 35%
  • Karlar: 
    • Oftast í gegnum samfélagsmiðla eða stefnumótaforrit - 40%
    • Oftast í eigin persónu - 32%
    • Á yfirleitt ekki frumkvæðið að fyrstu samskiptum - 28%


*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Allar kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Gréta Karen leitar að íbúð og kærasta

„Ég er aðallega að leita eftir svona Ryan Gosling í Notebook ást, ef það er ekki þannig þá má bara gleyma því,“ segir tónlistarkonan Gréta Karen Grétarsdóttir í viðtali við Makamál. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×