Makamál

Á hvaða vettvangi sýnir þú ókunnugri manneskju áhuga?

Ása Ninna Pétursdóttir og skrifa
Ætli fyrstu kynni augliti til auglitis séu á undanhaldi í nútíma samfélagi? 
Ætli fyrstu kynni augliti til auglitis séu á undanhaldi í nútíma samfélagi?  Getty

Hvar ætli sé algengast að fyrstu kynni eigi sér stað í nútíma samfélagi? 

Ef einhver vekur áhuga okkar er misjafnt hversu frökk við erum að taka af skarið, stíga þetta fyrsta skref í samskiptum. 

Fyrir tíma samfélagsmiðla og stefnumótappa voru það samskiptin augliti til auglitis sem yfirleitt urðu undanfari fyrstu kynna. 

Í dag er öldin önnur. Við sjáum fleira fólk en áður og í mörgum tilvikum byrja samskipti fólks, hvort sem það er vinnutengt eða ekki, í gegnum samfélagsmiðla, tölvupósta eða stefnumótaöpp. 

En hvernig ætli þetta sé þegar kemur að því að sína manneskju áhuga, bjóða á stefnumót eða bara byrja spjall. 

Ætli þróunin sé jafnvel orðin þannig að þó að þú sjáir manneskju augliti til auglits að það sé eftirsóknarverðara að sýna áhuga í gegnum einhverja miðla í stað þess að kynna sig og byrja að spjalla?

Sem dæmi. Þú sérð manneskju á kaffihúsi sem vekur áhuga þinn. Reynir þú þá frekar að finna hana á samfélagsmiðlum til að byrja að fylgja henni frekar að ná augnsambandi og byrja einhverskonar samskipti? 

Gæti það verið að smátt og smátt séum við að missa niður þá samskiptahæfni að geta sýnt fólki áhuga augliti til auglitis? 

Spurning vikunnar er að þessu sinni kynjaskipt og er fólk beðið um að svara þeirri könnun sem við á. 

Konur svara hér: 

Karlar svara hér: 


Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×