UNICEF: Hrollvekjandi fréttir af fjölgun barnahjónabanda í Afganistan Heimsljós 16. nóvember 2021 12:01 UNICEF Fjölskyldur í neyð bjóða stúlkubörn allt niður í 20 daga gömul í skiptum fyrir heimanmund. „Ég hef gríðarlegar áhyggjur af þeim fregnum að barnahjónaböndum fjölgi hratt í Afganistan,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í yfirlýsingu segir hún að UNICEF hafi upplýsingar um að fjölskyldur í neyð séu að bjóða barnungar stúlkur sínar í skiptum fyrir heimanmund. Stúlkur allt niður í 20 daga gamlar. „Fyrir nýjustu vendingar í stjórnmálum landsins höfðu UNICEF og samstarfsaðilar skráð 183 tilfelli um barnahjónabönd og 10 tilfelli um sölu á börnum á árunum 2018 og 2019. Og það bara í héruðunum Herat og Baghdis. Börnin sem þar um ræddi voru frá sex mánaða gömul upp í sautján ára,“ segir Fore í yfirlýsingu sinni. UNICEF áætlar að 28 prósent afganskra stúlkna og kvenna á aldrinum 15-49 ára hafi verið giftar fyrir átján ára aldur. „COVID-heimsfaraldurinn, áframhaldandi matarskortur og yfirvofandi vetur hefur stóraukið á neyð fjölskyldna í Afganistan. Árið 2020 var nærri helmingur afgönsku þjóðarinnar svo fátækur að hann leið skort á nauðsynjum á borð við næringu og hreint vatn. Hið alvarlega efnahagsástand sem nú ríkir steypir fleiri fjölskyldum í hyl fátæktar og neyðir þær til að taka örvæntingarfullar ákvarðanir á borð við þær að senda börn sín til vinnu eða selja barnungar dætur sínar í hjónaband.“ Fore segir að nú megi fæstar unglingsstúlkur í Afganistan stunda nám og aukin hætta sé á að fleiri endi nauðugar í hjónabandi á barnsaldri. Menntun sé oft besta vörnin gegn barnahjónaböndum og barnaþrælkun. „UNICEF heldur áfram vinnu sinni með samstarfsaðilum að vekja samfélög til vitundar um hættur hjónabanda af þessu tagi og skaðann sem þau geta valdið stúlkum til lífstíðar. Stúlkur sem neyddar eru í hjónaband fyrir 18 ára aldur eru ólíklegri til að halda áfram námi og mun líklegri til að sæta heimilisofbeldi, mismunun, misnotkun og glíma við geðræn vandkvæði.“ Stjórnvöld grípi tafarlaust til aðgerða Fore segir UNICEF byrjað með fjárstuðningsverkefni í Afganistan, þar sem útdeilt er peningum, til að bregðast við hungri, barnaþrælkun og barnahjónaböndum meðal viðkvæmustu hópanna. Áform séu um að auka þessa þjónustu og aðra félagsþjónustu á næstu mánuðum. „UNICEF mun líka vinna með trúarleiðtogum til að tryggja að þeir taki ekki þátt í „Nekah“ (hjónabandssamningnum) fyrir ungar stúlkur. En þetta er ekki nóg. Við köllum eftir því að stjórnvöld á öllum stigum grípi til aðgerða til að styðja og vernda viðkvæmar fjölskyldur og stúlkur. Við hvetjum stjórnvöld til að opna skóla fyrir stúlkur og leyfa konum að halda áfram kennslustörfum án tafar. Framtíð heillar kynslóðar stúlkna að veði.“ Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Afganistan Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Afganistan Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent
„
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Afganistan Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent