Samstarf

Smákökusamkeppnin endar með sykursjokki

Kornax
Skiladagur fyrir Smákökusamkeppni Kornax er þann 17. nóvember.  Þau Albert Eiríksson , Eva María Hallgrímsdóttir, Auðjón Guðmundsson og Jóhannes Freyr Baldursson, deildarstjóri matvælasviðs Kornax skipa dómnefndina í ár.
Skiladagur fyrir Smákökusamkeppni Kornax er þann 17. nóvember.  Þau Albert Eiríksson , Eva María Hallgrímsdóttir, Auðjón Guðmundsson og Jóhannes Freyr Baldursson, deildarstjóri matvælasviðs Kornax skipa dómnefndina í ár.

Úrslitin verða tilkynnt á þættinum í Bítinu á Bylgjunni þann 19. nóvember.

Árleg smákökusamkeppni Kornax brestur nú á í tólfta sinn en skiladagur þeirra sem ætla að taka þátt er 17. nóvember. Senda þarf inn uppskrift undir dulnefni og kökur fyrir dómnefndina að smakka. Stórglæsileg verðlaun eru í boði fyrir þrjú efstu sætin en einnig fá allir þátttakendur glaðning með bökunarvörum frá Kornax, Nesbú og Nóa Sírius.

Dómnefndin er þegar komin með vatn í munninn enda berast um og yfir þrjú hundruð kökur í keppnina á hverju ári. Annálaðir sælkerar og fagfólk í bakstri skipa dómnefndina, Þau Albert Eiríksson hjá Albert eldar, Eva María Hallgrímsdóttir í Sætum syndum, Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Sírius og Jóhannes Freyr Baldursson, deildarstjóri matvælasviðs Kornax.

„Þetta eru allt miklir reynsluboltar og fagfólk fram í fingurgóma,“ segir Jóhannes Freyr. „Í fyrra bárust tæplega þrjú hundruð tegundir í keppnina. Hver dómari smakkaði um það bil sjötíu tegundir og valdi tuttugu og fimm úr. Allir dómararnir smökkuðu þær hundrað tegundir sem þá stóðu eftir og völdu úr aftur og aftur þar til eftir stóðu þær þrjár uppskriftir sem hlutu verðlaunin. Við erum auðvitað í sykursjokki að kvöldi dags,“ segir Jóhannes Freyr.

Úrslitin verða tilkynnt á þættinum í Bítinu á Bylgjunni þann 19. nóvember og verðlaunin afhent í kjölfarið. Jóhannes segir keppnina afar vinsæla. Fleiri og fleiri taki þátt á hverju ári og mikill metnaður einkenni kökurnar sem sendar eru inn. En er eitthvað sérstakt sem þarf til að heilla dómnefndina?

„Bara gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Það er ótrúlega gaman að sjá hve mikla vinnu fólk leggur í kökurnar.“ segir Jóhannes.

Verðlaunin fyrir þrjú efstu sætin eru ekki af verri endanum

1. Sæti

KitchenAid hrærivél (Artisan 175 línan) frá Raflandi í lit að eigin vali.

Gjafabréf að upphæð kr. 50.000 frá Nettó

Gisting í 2ja manna herbergi ásamt morgunverði á Hótel KEA

Gjafabréf að upphæð kr. 20.000 á veitingastaðinn Apótekið

Glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus

Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú

Kornax hveiti í baksturinn

2. Sæti

Gjafabréf að upphæð kr. 30.000 frá Nettó

Gjafabréf fyrir tvo frá veitingastaðnum Apótekið í Afternoon Tea

Glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus

Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú

Kornax hveiti í baksturinn

3. Sæti

Gjafabréf að upphæð kr. 20.000 frá Nettó

Glæsileg gjafakarfa frá Nóa Síríus

Hamingjuegg í baksturinn frá Nesbú

Kornax hveiti í baksturinn

Hér fyrir neðan má sjá vinningsuppskrift frá árinu 2019 eftir Guðnýju Jónsdóttur

Mæru-lyst eftir Guðnýju Jónsdóttur heilluðu dómnefndina upp úr skónum 2019.

Mæru-lyst

  • 150 g lint smjör
  • 100 g dökkur púðursykur
  • 100 g hrásykur
  • 1 egg
  • 200 g Kornax hveiti
  • 1 tsk vínsteins lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 tsk gróft malað hafsalt
  • rifinn börkur af einni appelsínu
  • 10 g Síríus karamellukurl.

Hrærið smjör, púðursykur og hrásykur vel saman.

Bætið við eggi, appelsínuberki og vanilludropum og hrærið vel.

Sigtið saman hveiti, vínsteins lyftiduft og matarsóda og bætið við ásamt karamellukurli og hafsalti og hrærið varlega saman við.

Setjið á bökunarplötu með lítilli teskeið, kökurnar renna dálítið út. Bakið við 180°C í 7-10 mín

Skraut ofan á:

Hvítir súkkulaðidropar og Síríus karamellukurl.

Bræðið súkkulaðidropana í vatnsbaði og setjið yfir kökurnar. Stráið karamellukurli yfir.

Hér má nálgast fleiri uppskriftir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×