Samstarf

Sænsk náttúra í svefnherbergið

Vogue fyrir heimilið
Verksmiðja Dorbien er umvafin skógi sem veitir hönnuðum rúmanna innblástur.
Verksmiðja Dorbien er umvafin skógi sem veitir hönnuðum rúmanna innblástur.

Dorbian rúmin eru sænsk gæðaframleiðsla.

„Dorbian Beds er glæný lína af stillanlegum rúmum sem eru sérsniðin eftir þörfum viðskiptavinarins. Þau hafa slegið í gegn í Skandinavíu og ekki að ástæðulausu,“ segir Steinn Kári Ragnarsson, framkvæmdastjóri Vogue fyrir heimilið.

Dorbian rúmin eru sænsk, framleidd í þorpinu Kungsör í verksmiðju við vatnið Mälaren. Kungsör er umvafið þéttum skógi og sækja framleiðendur innblástur í umhverfið.

„Ég heimsótti verksmiðjuna og sá hversu flott framleiðsla þetta er. Það er hvergi til sparað og ekkert slegið af gæðum. Þau reyna að vera eins nálægt náttúrunni og hægt er við framleiðsluna, rúmin eru handgerð og sænskur viður í öllu burðarvirki í rúmgrindinni. Mótorarnir koma frá Danmörku og talalay latex, ull og bómull er notuð í rúmdýnurnar. Í nokkrar gerðir eru einnig notuð hrosshár í dýnuna og allt gert til þess að loftunin sé sem best um rúmið. Þau byggja á áratuga reynslu sem tryggir hámarks gæði og rúmlega það á besta mögulega verðinu,“ segir Steinn Kári.

Hægt er að panta rúmið í þeim stífleika sem hentar viðskiptavininum og sér velja áklæðið á rúmið og fætur undir grindina. Rúmið er síðan framleitt fyrir þig og kemur heim með öllu að átta vikum liðnum. Á gormunum í rúminu er 20 ára ábyrgð, 5 ára ábyrgð á mótorum og hreyfanlegum hlutum og 20 ára ábyrgð er á burðarvirkinu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×