Viðskipti erlent

Ætla ekki að auka olíuframleiðslu til að lækka verð

Samúel Karl Ólason skrifar
Greinendur búast við frekari eldsneytishækkunum en þó mismiklum.
Greinendur búast við frekari eldsneytishækkunum en þó mismiklum. EPA/ALI HAIDER

OPEC-ríkin, Rússar og aðrir olíuframleiðendur ætla ekki að auka olíuframleiðslu með því markmiðið að draga úr eldsneytisverði. Þess í stað munu ríkin auka olíu um um það bil 400 þúsund tunnur á dag í desember.

Þetta kom fram á fundi ríkjanna í dag en eldsneytisverð hefur hækkað mjög að undanförnu og er búist við frekari hækkunum.

Sú aukning sem samþykkt var á fundinum í er í samræmi við áætlun hópsins að auka framleiðsluna um það sem nemur 400 þúsund tunnum á dag á hverjum mánuði á næsta ári. Þannig vilja forsvarsmenn ríkjanna bæta hægt upp þá skerðingu sem gerð var á olíuframleiðslu undanfarin ár.

Olíuverð hefur ekki verið hærra í sjö ár. Gasverð hefur einnig hækkað mikið að undanförnu og hefur það leitt til þess að fleiri leita til olíu, sem veldur aukinni eftirspurn eftir olíu.

G20-ríkin vilja beita þrýstingi

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, og aðrir þjóðarleiðtogar hafa kallað eftir því að olíuframleiðsla verði aukin hraðar. Bandaríkjamenn notuðu G-20 fundinn á Ítalíu í síðustu viku til að leggja á ráðin með forsvarsmönnum annarra olíuþyrstra ríkja.

Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar var markmiðið að finna leiðir til að beita olíuframleiðendur þrýstingi til að auka framleiðsluna hraðar.

Frá sjónarhóli olíuframleiðenda þýðir hægari framleiðsluaukning þýðir hærra eldsneytisverð og meiri tekjur fyrir þá. Ríkin draga þar að auki úr hættunni á því að framleiðslan verði aukin of mikið og verð lækki of mikið.

Spá miklum hækkunum

Bank of America spáir því að tunna af Brent-hráolíu muni kosta 120 dali fyrir júní á næsta ári. Í slíku tilviki væru um um það bil 45 prósenta hækkun að ræða en tunnan er í dag í 83 dölum.

CNN hefur þó eftir öðrum greinendum að ólíklegt sé að olíuverð verði eins hátt og það er lengi.

Í frétt CNN er rætt við greinanda Bank of America sem segir OPEC ríkin og Rússa hafa engan áhuga á lækkun olíuverðs. Francisco Blanch segir að mörg aðildarríki OPEC segi framleiðslukostnað einnar olíutunnu vera milli 70 og 75 dala. Eins og staðan sé núna séu þau ríki að koma út á jöfnu.

Þar að auki segir CNN að uppi séu spurningar um það hvort olíuframleiðendur geti yfir höfuð aukið olíuframleiðslu hraðar en þeir ætli sér. Fjárfestingar í geiranum hafi verið í lágmarki.


Tengdar fréttir

Auka olíuframleiðslu til að lækka verð

OPEC-ríkin og bandamenn þeirra undir forystu Rússlands hafa ákveðið að auka framleiðslu hráolíu um tvær milljónir tunna á dag fyrir árslok. Þetta er gert til að mæta aukinni eftirspurn þegar áhrif Covid-19 á hagkerfi heimsins dvína.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×