Í tilkynningu frá Strætó segir að markmið breytingarinnar sé fyrst og fremst að einfalda gjaldskrána og gera öllum hópum kleift að kaupa mánaðarkort á hagstæðu verði.
Almennt fargjald fyrir fullorðna verður eftirfarandi:

- Ungmenni, aldraðir og nemar* eiga rétt á 50% afslætti.
- Öryrkjar eiga rétt á 70% afslætti
- Börn yngri en 11 ára ferðast frítt með Strætó.
* Nemar fá 50% afslátt af tímabilskortum en ekki af stökum fargjöldum.
Hér fyrir neðan verður farið nánar yfir það hvernig gjaldskráin breytist fyrir eftirfarandi hópa.
Almenn fargjöld
Engin breyting verður gerð á stöku fargjaldi fyrir fullorðna. Það verður áfram 490 kr.
Mánaðarkort fyrir fullorðna mun lækka úr 13.300 kr. niður í 8.000 kr. Tilboðið þar sem þriðji hver mánuður er frír í appinu verður ekki lengur í boði.
Engin breyting verður gerð á árskorti fyrir fullorðna. Þau kosta áfram 80.000 kr.


Ungmenni 12-17 ára
Ungmenni fá 50% afslátt af almennum fargjöldum.
Engin breyting verður gerð á stöku fargjaldi fyrir ungmenni. Þau munu áfram greiða 245 kr.
Í dag geta ungmenni eingöngu keypt árskort á afslætti. Við breytinguna opnast möguleiki fyrir þennan hóp að kaupa mánaðarkort á 4.000 kr.
Árskort ungmenna munu hækka við þessa breytingu. Þau fara úr 25.000 kr. og upp í 40.000 kr.

Öryrkjar
Öryrkjar fá 70% afslátt af almennum fargjöldum.
Stakt fargjald fyrir öryrkja lækkar úr 245 kr. niður í 170 kr.
Í dag geta öryrkjar eingöngu keypt árskort á afslætti. Við breytinguna opnast möguleiki fyrir þá að kaupa mánaðarkort á 2.400 kr.
Árskort fyrir öryrkja lækkar eftir breytinguna um 1.000 kr. og mun því kosta 24.000 kr. í stað 25.000 kr.
Til þess að geta keypt fargjöld á 70% afslætti þá er nauðsynlegt að öryrkjar stofni aðgang að mínum síðum inn á klappid.is og staðfesti sig með rafrænum skilríkjum.

Aldraðir, 67 ára og eldri
Aldraðir fá 50% afslátt af almennum fargjöldum.
Engin breyting verður gerð á stöku fargjaldi fyrir aldraða. Þau munu áfram greiða 245 kr.
Í dag geta aldraðir eingöngu keypt árskort á afslætti. Við breytinguna opnast möguleiki fyrir þá að kaupa mánaðarkort á 4.000 kr.
Árskort aldraðra munu hækka við þessa breytingu. Þau fara úr 25.000 kr. og upp í 40.000 kr.

Nemar fá 50% afslátt af tímabilskortum.Nemar, 18 ára og eldri
Engin breyting verður gerð á stöku fargjaldi fyrir nema sem eru 18 ára og eldri. Það verður áfram 490 kr.
Í dag geta nemar eingöngu keypt árskort eða 6 mánaðakort á afslætti. Við breytinguna opnast möguleiki fyrir nemendur að kaupa mánaðarkort á 4.000 kr.
Árskort fyrir nema mun lækka úr 54.500 kr. og niður í 40.000 kr.
Til þess að geta keypt mánaðarkort eða árskort á 50% afslætti þá er nauðsynlegt að nemar stofni aðgang að mínum síðum inn á klappid.is og staðfesti sig með rafrænum skilríkjum.

Hvað gerist með gamla farmiða og gömul strætókort?
Frá og með 1. mars 2022, þá verður ekki lengur hægt að greiða með farmiðum um borð í Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Gefinn verður frestur til 16. mars 2022 til þess að skipta öllum gömlum farmiðum yfir í inneign í KLAPP greiðslukerfinu.
Handhafar tímabilskorta í gamla greiðslukerfi Strætó skulu leyfa gildistíma kortanna að renna út áður en skipt er yfir í KLAPP greiðslukerfið.
Það verður áfram hægt að greiða með reiðufé um borð í Strætó.
Þessi breyting tekur gildi 16. nóvember 2021,“ segir í tilkynningunni.