Atvinnulíf

Þegar karlmenn grípa fram í fyrir konum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Rannsóknir hafa sýnt að það er oftar gripið fram í fyrir konum og körlum og að konur þykja jafnvel algjörar frekjur ef þær eru ákveðnar í því að tala samt.
Rannsóknir hafa sýnt að það er oftar gripið fram í fyrir konum og körlum og að konur þykja jafnvel algjörar frekjur ef þær eru ákveðnar í því að tala samt. Vísir/Getty

Rannsóknir hafa sýnt að það er oftar gripið fram í fyrir konum þegar þær eru að tala, í samanburði við karlmenn.

Sem dæmi má nefna niðurstöður rannsóknar sem gerð í George Washington University þar sem niðurstöður sýna að karlmenn grípa fram í fyrir konum 33% oftar en við karlmenn.

Frægt er orðið það dæmi sem þótti kristalla þennan ósið karlmanna sérstaklega vel.

Það var í kappræðum Kamala Harris varaforseta Bandaríkjanna og forvera hennar, Mike Pence, sem þá greip frammí fyrir Harris í alls tíu skipti.

Og hún svaraði:

„Herra Pence, ég er að tala.“

Hverjir og hvar er þetta helst að finna?

Þessi ósiður er mest áberandi í karllægu umhverfi. Hvort heldur sem er á karllægum vinnustöðum eða á fundum þar sem karlmenn eru í meirihluta.

Rannsóknir hafa hins vegar einnig sýnt að konur eiga það oftar til að tala í hálfgerðum spurningartón. Eða eru nánast of kurteisar.

Svara til dæmis: „Fyrirgefðu, má ég klára?“

Sem í raun hljómar eins og beiðni til þess sem greip fram í.

Til að bæta gráu ofan á svart er stundum vísað í konur sem algjörar frekjur, ef þær eru ekki kurteisar þegar þær þagga niður í þeim sem greip fram í og halda áfram að tala.

En hér eru nokkur góð ráð.

1. Settu sjálfstraust í röddina

Talaðu af öryggi. Hátt og skýrt. Því þegar þú talar af miklu öryggi er það erfiðara fyrir aðra að grípa fram í fyrir þér.

2. Ekki taka þessu persónulega

Það finnst öllum leiðinlegt þegar að fólk grípur fram í fyrir þeim. En reyndu að taka fram í gripinu ekki persónulega, því það er ekkert betra fyrir þig að halda áfram en að fólk heyri að þú stuðaðist eða ert orðin pirruð yfir ókurteisinni.

Á fundum getur það til dæmis gerst að fólk tekur meira eftir því að þú ert orðin pirruð, heldur en að það muni eftir því að verið var að grípa fram í fyrir þér.

Einbeittu þér bara að því sem þú ætlar að segja.

3. Haltu áfram að tala

Ekki gefast upp þótt það sé gripið fram í fyrir þér. Haltu hreinlega áfram að tala og hækkaðu aðeins róminn ef þú þarft þess, til að þagga niður í þeim sem greip fram í fyrir þér.

Þetta hljómar ekkert skemmtilega og er það ekki. En þegar það er verið að „tala yfir þig,“ er þetta ráð sem þú þarft hreinlega að grípa til.

Þannig að haltu áfram að tala þar til þú hefur klárað að segja það sem þú ætlaðir þér.

4. Ekki afsaka þig

Ef viðkomandi aðili heldur áfram að grípa fram í fyrir þér (svona eins og margar konur kannast við), er um að gera að stoppa viðkomandi með því að segja að þú ætlir að klára.

En ekki biðja um leyfi til þess að klára. Tilkynntu það bara.

Dæmi:

Ekki segja: „Fyrirgefðu, má ég klára?“

Segðu frekar: „Fyrirgefðu, ég ætla að klára.“

Sumum konum hefur nýst vel að leggja svona setningar á minnið. Til dæmis væri hægt að taka Kamala Harris sem fyrirmynd og læra setninguna hennar:  „Herra Pence, ég er að tala.“

5. Taktu áfram þátt

Segjum sem svo að allt ofangreint virki ekki, sá sem greip fram í fyrir þér heldur áfram að gera það eins og margar konur kannast við.

Hér er aðalmálið að draga sig EKKI í hlé, heldur halda áfram að taka þátt í samræðunum.

Ef þú nærð ekki að klára þitt mál, er til dæmis hægt að taka þátt með því að taka undir eða gefa endurgjöf á eitthvað sem aðrir eru að segja. Eða að koma þínu að aftur aðeins síðar á fundinum.

Gott er að hugsa þetta eins og að slá tvær flugur í einu höggi: Sýna að þú ert góður liðsmaður og um leið að þú ert ófeimin við að taka þátt í umræðum.


Tengdar fréttir

Launamunur mestur í karllægum starfsstéttum

„Fljótt á litið virðist þetta mjög tengt hve störfin eru kynbundin, í skrifstofuhópnum eru konur í miklum meirihluta og þar er jöfnuðurinn meiri en því hærra sem hlutfall karla er í starfsstéttinni þá eykst ójöfnuðurinn meiri,“ segir Víðir Ragnarsson, forstöðumaður ráðgjafar hjá PayAnalytics um niðurstöður nýrrar rannsóknar á launamunum kynjanna.

Stjórnarkonur ósáttar: Karlaklíkur útiloka konur í forstjórastólinn

Stjórnarkonur í skráðum félögum á Íslandi telja ráðningaferli í forstjórastól oft útilokandi fyrir konur. Þær kalla stjórnir í heild sinni til ábyrgðar. Þá telja margar ráðningaferlin oft meingölluð. Það eigi einnig við um ráðningar þar sem leitað er til fagaðila. Þetta og fleira kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtar eru í dag og meira en helmingur stjórnarkvenna í skráðum félögum á Íslandi tók þátt í.

Konur sem berjast fyrir jafnrétti verða oft fyrir aðkasti

„Ég vona að lagasetningin sé innlegg í þá viðhorfbreytingu sem byggir á að konur geti tekið þátt í kynferðislegri háttsemi án þess að eiga á hætti að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Það er ekki bara áfall og kostnaður fyrir einstaklinga sem fyrir slíku verða, heldur samfélagið og þannig atvinnulífið,” segir María Bjarnadóttir lögfræðingur, en hún skrifaði greiningagerðina fyrir íslensk stjórnvöld sem ný lög um stafrænt ofbeldi byggir á.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×