Rafíþróttir

Heimsmeistararnir enn taplausir | Allt jafnt í D-riðli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hafa unnið báða leiki sína nokkuð sannfærandi.
Ríkjandi heimsmeistarar í DWG KIA hafa unnið báða leiki sína nokkuð sannfærandi. LanceSkundrich/Riot Games Inc. via Getty Images

Annar dagur riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í League of Legends fór fram í dag, en spilaðir voru átta leikir. Heimsmeistararnir í DWG KIA hafa unnið báða leiki sína, og sömu sögu er að segja af Edward Gaming og Royal Never Give Up.

Þessi þrjú lið spiluðu einmitt þrjá af fyrstu fjórum leikjum dagsins. Edward Gaming mætti gamla stórveldinu T1 í fyrsta leik dagsins og virtust alltaf vera einu skrefi á undan. T1 hélt úr í rúmar 35 mínútur, en að lokum voru það liðsmenn Edward Gaming sem unnu nokkuð sannfærandi sigur.

Heimsmeistararnir í DWG KIA voru næstir á svið, en þeir mættu evrópska liðinu Rogue. Liðsmenn DWG KIA sýndu það fljótt að þeir voru ekki mættir til að leika sér og tóku fljótt afgerandi forystu.

Rogue gafst þó ekki auðveldlega upp og þeir virtust ætla að ná að breyta þessu í spennandi leik, en eftir rúman hálftíma af League of Legends tóku liðsmenn DWG KIA aftur völdin og tyggðu sér sannfærandi sigur.

Þriðji leikur dagsins var viðureign PSG Talon og Hanwha Life í D-riðli. Þeir síðarnefndu nryjuðu leikinn betur, og héldu forskoti fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Þá fór leikurinn að snúast í höndunum á þeim, og PSG Talon sótti að lokum sinn fyrsta sigur á mótinu eftir virkilega spennandi leik.

Evrópska liðið Fnatic mætti MSI-meisturunum Royal Never Give Up í fjórða leik dagsins. Leikurinn virtist ætla að verða nokkuð jafn og spennandi, en hægt og rólega unnu liðsmenn Royal Never Give Up sér inn stærra og stærra forskot, sem endaði svo með öðrum sigri þeirra á tveim dögum. Fnatic er hins vegar enn án sigurs.

Cloud9 byrjaði virkilega vel í fimmtu viðureign dagsins þegar að liðið mætti FPX. Þeir síðarnefndu eru taldir líklegir til afreka á mótinu, og því var það nokkuð óvænt þegar að bandaríska liðið tók forystuna snemma leiks.

Úr varð virkilega spennandi og skemmtilegur leikur, þar sem að bæði lið þurftu á sigri að halda. Það tók liðsmenn FPX rúmar 35 minútur að snúa leiknum sér í hag, en þeir unnu að lokum mikilvægan sigur gegn Cloud9.

100 Thieves vann sannfærandi sigur gegn DetonatioN FocusMe í sjöttu viðureign dagsins, áður en MAD Lions og Gen.G mættust í mest spennandi leik dagsins.

Það var í raun ekkert sem gat skilið liðin að fyrstu 35 mínúturnar, en fljótlega eftir það fóru liðsmenn MAD Lions að síga fram úr. Að lokum tók það MAD Lions 47 mínútur að vinna mikilvægan sigur gegn virkilega sterku liði Gen.G.

Seinasti leikur dagsins var svo viðureign Team Liquid og LNG. Nokku jafnræði var með liðunum fyrstu 15 mínútur leiksins, en eftir það var það LNG sem tók öll völd og vann að lokum sannfærandi sigur.

Sigrar LNG og MAD Lions þýða það að öll fjögur liðin í D-riðli hafa nú unnuð einn leik og tapað einum eftir tvær umferðir í riðlakeppninni og það er því allt í járnum þar, en stöðuna í riðlunum má sjá hér fyrir neðan.

Heimsmeistaramótið í League of Legends heldur áfram á morgun með öðrum átta leikjum, en eins og ápur er hægt að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport frá klukkan 11:00.

Úrslit dagsins og viðureignir morgundagsins

Úrslit dagsins

T1 - Edward Gaming

Rogue - DWG KIA

PSG Talon - Hanwha Life

Fnatic - Royal Never Give Up

Cloud9 - FPX

DetonatioN FocusMe - 100 Thieves

MAD Lions - Gen.G

Team Liquid - LNG

Viðureignir morgundagsins

11:00: Royal Never Give Up - Hanwha Life

12:00: MAD Lions - LNG

13:00: FPX - Rogue

14:00: PSG Talon - Fnatic

15:00: Gen.G - Team Liquid

16:00: DWG KIA - Cloud9

17:00: Edward Gaming - DetonatioN FocusMe

18:00: 100 Thieves - T1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×