Arnór og Bjarki fá markvörð frá Manchester United Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2021 13:31 Sergio Romero lék aðeins sjö deildarleiki á sex leiktíðum með Manchester United og var kominn aftarlega í goggunarröðina áður en hann kvaddi loks félagið í sumar. Getty/James Williamson Argentínski landsliðsmarkvörðurinn Sergio Romero hefur skrifað undir samning við ítalska knattspyrnufélagið Venezia. Þar hittir hann fyrir tvo Íslendinga.
Arnór Sigurðsson og Bjarki Steinn Bjarkason eru báðir leikmenn Venezia í vetur en Arnór er hjá félaginu að láni frá CSKA Moskvu. Óttar Magnús Karlsson er einnig samningsbundinn Venezia en var lánaður til C-deildarfélagsins Siena út leiktíðina. Romero, sem er 34 ára, hefur verið án félags síðan í sumar eftir að samningur hans við Manchester United rann út. Hann lék síðast í ítölsku A-deildinni tímabilið 2014-15 en gekk svo í raðir United. Þar varð hann að mestu að gera sér að góðu hlutverk varamarkvarðar. Romero varði mark Argentínu á HM 2010 og 2014 en á seinna mótinu endaði liðið í 2. sæti. Hann hefur einnig spilað á Copa America þrisvar sinnum. Orðrómur var uppi um að Romero færi til Spánar í sumar og ítalska félagið Spezia hafði einnig áhuga á honum. Nú er hins vegar ljóst að hann verður leikmaður Venezia.
Ítalski boltinn Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira