Makamál

Leitar að stjúp­pabba fyrir framan al­þjóð

Ása Ninna Pétursdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Selfossmærin Sigurbjörg Grétarsdóttir ákvað að láta undan þrýstingi dóttur sinnar og skella sér á blint stefnumót í raunveruleikaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2. 
Selfossmærin Sigurbjörg Grétarsdóttir ákvað að láta undan þrýstingi dóttur sinnar og skella sér á blint stefnumót í raunveruleikaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2. 

Í síðasta þætti Fyrsta bliksins ákvað þáttarstjórnandinn Ása Ninna að koma móður sinni á blint stefnumót, og það í sjónvarpinu. 

Sigurbjörg Grétarsdóttir, eða Sibba Grétars eins og hún er alltaf kölluð, var pöruð saman við ólívukónginn og bílstjórann Sighvat Frank Cassata.

Sighvatur er ættaður frá Sikiley en Sigurbjörg frá Selfossi, hvað eru mörg S í því? 

Ásamt því að hafa bæði einstaklega gaman að tónlist...

Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)

Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þáttinn en hafa enn ekki séð hann þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.

Það voru ekki allir eins afslappaðir og Sigurbjörg á stefnumótinu. 

....þá elska þau bæði að ferðast og njóta lífsins. 

Það var ekki annað hægt að sjá en að Sibba hafi ekki látið þessa tilraun dóttur sinnar til að koma sér út stressa sig neitt sérstaklega og var hún einstaklega afslöppuð og virtist njóta sín í botn. 

Stressið var meira áberandi hjá öðrum ættlið þetta kvöldið.

Eins og sjá má í klippunni hér fyrir neðan notaði Sibba hvert tækifæri til slá á létta strengi, bæði í viðtalinu og á sjálfu stefnumótinu. 

Klippa: Fyrsta blikið - Mamma slær á létta strengi

Þó svo að ekki hafi mátt greina eina einustu rómantík á stefnumótinu sjálfu sögðust bæði Sibba og Sighvatur ánægð með kvöldið og reynsluna. 

Í dag er Cassata enn einhleypur og þáttarstjórnandinn heldur leit sinni áfram að stjúp pabbanum. 

Sibba lét stressið ekki þvælast fyrir sér á stefnumótinu og sló á létta strengi við hvert tækifæri. 

Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2. 

Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur. 

Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×