Atvinnulíf

Bjuggu til leiðtoganám á Bifröst fyrir verslunarstjóra Samkaupa

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, ásamt nemendum í leiðtoganámi fyrir verslunarstjóra fyrirtækisins sem mótað var í samvinnu við háskólann á Bifröst. 
Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, ásamt nemendum í leiðtoganámi fyrir verslunarstjóra fyrirtækisins sem mótað var í samvinnu við háskólann á Bifröst. 

Með aukinni sjálfvirknivæðingu og síbreytilegu umhverfi vinnustaða hefur þjálfun starfsfólks og menntun á vegum vinnustaða aukist. Samkaup og Háskólinn á Bifröst hafa nú mótað saman sérstakt leiðtoganám fyrir verslunarstjóra Samkaupa en námið er vottað 12ECT eininga háskólanám og því geta nemendur nýtt sér einingarnar síðar fyrir frekari háskólanám.

Við vonumst til að árangurinn sé að þeir stjórnendur sem fara í gegnum námið geti tekið virkan þátt í starfi fyrirtækisins og miðlað sinni hæfni og færni áfram, geti leitt vinnustaði áfram í síbreytilegu umhverfi með mannlega forystu að leiðarljósi,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa um leiðtoganámið.

Í Atvinnulífinu í dag og á morgun verður fjallað um tvær leiðir til leiðtoganáms fyrir starfsfólk og vinnustaði.

Sterkari liðsheild: Starfsfólkið og vinnustaðurinn

Leiðtoganámið er undir yfirskriftinni Forysta til framtíðar og býðst verslunarstjórum verslana Samkaupa sem eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.

Leiðtoganámið er leið til að auka á hæfni og þekkingu stjórnenda, sem skilar sér síðan í sterkari liðsheild fyrir fyrirtækið.

„Með forystunáminu erum við að auka hæfni og þekkingu stjórnenda á þessum vettvangi auk þessu að bjóða þeim verkfæri og aðferðir sem þeir geta nýtt til að skapa samhenta liðsheild, þar sem þeir læra að byggja á styrkleikum starfsfólk, að nýta aðferðir markþjálfunar í samskiptum og að skapa jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi,“ segir Gunnur Líf.

Gunnur Líf segir mikilvægt að starfsfólk fái tækifæri til að þróast sem leiðtogar og styrkja sig sem einstaklingar.

Hver nemandi horfir innavið og kafar dýpra, lærir á sjálfan sig sem leiðtoga og hvað það er sem hann sem einstaklingur þarf að vinna með hverju sinni.“

Allt ofangreint segir Gunnur Líf fyrirtækið uppskera af.

„Árangurinn mælist einna helst í því að hver og einn tekur þátt í náminu, heilshugar og smátt og smátt, sjáum við styrkingu á menningunni og hugarfarinu, sem smitast inn á hvern vinnustað. Þó við séum enn komin stutt af stað, þá erum strax farin að sjá árangur af náminu, þar sem jafningjastuðningur er orðinn sterkari á milli nemenda.“

Gunnur Líf Gunnarsdóttir mannauðsstjóri Samkaupa.Vísir/Vilhelm

Námið og nemendur

Að sögn Gunnars byggir námið á fjórum staðlotum sem hafa mismunandi áherslu. Samtals telur námið 300 stundir og nær yfir níu mánaða tímabil.

Staðloturnar eru kenndar á Bifröst þar sem bæði kennarar frá Samkaupum og Bifröst miðla af þekkingu sinni og reynslu.

Á milli staðlota eru svo rafrænir fundir, einstaklingsverkefni og hópverkefni.

„Loturnar skiptast upp í mannlega forystu, þar sem áherslan er á styrkleikanálgun. Stefnumiðaða forystu, þar sem farið er í árangursríka forystu, leiðtogafræðin og liðsheild. Gildamiðuð forysta þar sem kafað er í menningu og hugarfar, virka hlustun og virkni starfsmanna auk þjónustu og gæði,“ segir Gunnur Líf og bætir við: „Síðasta lotan byggir síðan á upplýsingamiðaðri forystu, þar sem farið er á dýptina í samskipti og upplýsingamiðlun auk þrautseigjuþjálfunar.“

Átta nemendur eru í náminu í dag og segir Gunnur Líf að strax hafi verið ákveðið að nemendur væru ekki fleiri en tíu í hvert sinn.

Enda erum við að skapa traust, tengsl og vináttubönd innan hópsins í hvert skipti,“ 

segir Gunnur Líf og bendir á að sá jafningjastuðningur sem hópurinn upplifir í náminu sé ekki síst mikilvægur.

Kynjahlutföllin eru jöfn en yngsti nemandinn er 25 ára og sá elsti 58 ára.

Að móta námið og halda utan um það er í höndum Gunnar, Guðrúnar Snorradóttur frá Human Leader og Haraldar Daða Ragnarssonar kennara á Bifröst.

Gunnur segist afar ánægð með hvernig teymið hefur náð að byggja upp faglegt en praktískt nám, enda byggi það á raunverulegum verkefnum og áskorunum sem stjórnendur Samkaupa eru að fást við alla daga.

Forystunámið er komið til að vera

Að sögn Gunnar er forystunámið einn hlekkur af menntavegferð Samkaupa. Í þeirri menntavegferð gefst starfsfólki tækifæri samhliða vinnu og með fullum stuðningi Samkaupa, að mennta sig allt frá Fagprófi verslunar og þjónustu, að klára stúdentspróf og halda áfram upp í háskólanám.

Í heild sinni snúist menntavegferðin um að þjálfa og mennta starfsfólk sem leið til að mæta síbreytulegu umhverfi verslana og byggja upp undirstöður fyrir framtíðarstjórnendur félagsins.

„Ég er strax farin að skrá niður nöfn áhugasamra einstaklinga sem stefna á að vera með í næsta hóp forystunámsins og því erum við afar jákvæð fyrir framtíð okkar verslunarstjóra,“ segir Gunnur Líf og bætir við: „Náminu lýkur svo í stjórnendaferð til Danmerkur, þar sem nemendur fá tækifæri til að hitta stjórnendur Coop í Danmörku. Þar fá okkar stjórnendur að tengjast verslunarstjórum í Danmörku, sem munu taka á móti nemendum í nokkurskonar handleiðslu, miðla sinni þekkingu en við vitum að þau eru einnig að fást við sömu áskoranir og verkefni.“


Tengdar fréttir

Alcoa sendir fólk utan í nám

„Þó að stór hluti starfseminnar séu framleiðslustörf þá krefst starfsemin fjölbreyttra þekkingar og menntunar á fjölmörgum fagsviðum. Sum þeirra eru kennd í okkar háskólum hér á landi en önnur höfum við þurft að sækja erlendis, til dæmis til Noregs og Bretlands. Að auki þjálfum við okkar starfmenn reglulega innan fyrirtækisins,“ segir Ásgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðhalds og áreiðanleika hjá Fjarðaráli.

Ríkið innleiðir nýja stjórnendastefnu: Vilja hæfasta fólkið

„Stjórnendur ríkisins eiga að búa yfir hæfni og þekkingu til að geta brugðist við sífellt flóknara starfsumhverfi og vinna að breytingum í samfélaginu. Sú hæfni sem lögð er til grundvallar í stefnunni eru leiðtogahæfileikar, áhersla á árangursmiðaða stjórnun, samskiptahæfni og heilindi sem er svo útfærð nánar í stefnunni,“ segir Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins í fjármála- og efnahagsráðuneytinu um nýja stjórnendastefnu sem ríkið vinnur nú að því að innleiða.

„Fengum ítrekað að heyra að það væru bara engar konur“

„Í atvinnulífinu er síaukin eftirspurn eftir fólki með þekkingu á netkerfum, hýsingu og þessum rekstrarhluta tæknarinnar. Það hefur verið fjölgun á konum sem sækja nám í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði en nám í kerfisstjórn hefur setið svolítið eftir. Þess vegna vildum við athuga hvort einhverjar konur þarna úti hefðu kannski áhuga á þessu,“ segir Þóra Rut Jónsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Advania um það hvers vegna Advania, Íslandsbanki, NTV og Prómennt tóku höndum saman um að styrkja eina konu til náms í kerfisstjórnun.

Eiginmaðurinn sér um fréttavaktina á morgnana

Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa, segir eiginmanninn sjá um fréttavaktina fyrir þau hjónin alla morgna en þá gefur hann henni skýrslu um allt það helsta sem fjölmiðlarnir eru að fjalla um. Gunnur hefur lagt hlaupaskónna á hilluna en ætlar að vinna eiginmanninn í tennis í sumar. Hún segir Dagatalið og Outlook algjöra líflínu í skipulagi. Það á við um verkefnin í vinnunni, heima fyrir og já, líka tengt börnunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×