Samstarf

Jafnari orka og seinnipartsþreytan úr sögunni

Pure Natura
 Rakel Katrín Sigurhansdóttir og Sævar Haraldsson ásamt dóttur sinni. Fjölskyldan notar fæðubótarefnin frá Pure Natura með góðum árangri.
 Rakel Katrín Sigurhansdóttir og Sævar Haraldsson ásamt dóttur sinni. Fjölskyldan notar fæðubótarefnin frá Pure Natura með góðum árangri.

Fæðubótarefnin frá Pure Natura hafa breytt lífi fjölskyldunnar.

Rakel Katrín Sigurhansdóttir og Sævar Haraldsson reka hestaflutningafyrirtækið Fákafar ehf. Dagarnir geta orðið ansi langir við akstur um allt land og verkefnin mörg. Þau segjast bæði mun orkumeiri eftir að þau kynntust fæðubótarefnunum frá Pure Natura.

„Við sjáum um mikið af flutningi á þeim hestum sem eru á leið í útflutning og keyrum um allt land. Aðra daga erum við í hesthúsinu að temja og þjálfa eða skipuleggja ferðir. Við erum einnig sjálf að keppa og svo þarf að halda utan um bókhaldið. Það er einfaldlega brjálað að gera alla daga ársins og þreytan gat sagt til sín, sérstaklega þegar líða tók á daginn. En eftir að við fórum að taka vörurnar frá Pure Natura hefur orkan aukist, hún er jafnari yfir daginn og öll seinnipartsþreyta úr sögunni,“ segir Rakel.

„Ég hafði prófað ótal vörur við orkuleysi og þreytu áður en ég kynntist Pure Natura og nú hef ég tekið þær samfleytt í 4 ár. Ég get ekki án þeirra verið og finn mikinn mun ef ég gleymi að taka minn skammt, dagurinn er ónýtur. Ég reyni að eiga dósir bæði heima og uppi í hesthúsi og sný hiklaust við ef ég er lögð af stað í akstur og uppgötva að ég hef gleymt skammtinum. Sævar tekur Karla vöruna frá Pure Natura, „MEN“ og er svakalega hrifinn af þeirri vöru. Hún eflir karlmennskuna og gerir honum gott. Við höfum algjöra ofurtrú á Pure Natura og mælum með vörunum fyrir alla. Fimmtán ára dóttir okkar tekur Pure Natura LIVER, sem inniheldur frostþurrkaða lifur og fær gegnum hana nánast allt það helsta sem hún þarf,“ segir Rakel.

„Ég á bara ekki nógu sterk orð til að lýsa því hvað Pure Natura hefur gert mér gott. Það hefur algjörlega breytt lífi mínu,“ segir Rakel.

Vörurnar frá Pure Natura eru unnar úr náttúrulegu hráefni. Fyrirtækið er staðsett á Sauðárkróki og fer öll framleiðsla fram þar. 

Íslensk framleiðsla úr hreinu hráefni

Pure Natura er íslenskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða fæðubótarefni úr hreinu, íslensku hráefni. Fyrirtækið er staðsett á Sauðárkróki og var stofnað með það að markmiði að auka nýtingu íslenskra afurða, styðja við íslenska bændur, lágmarka umhverfismengun, skapa atvinnutækifæri í nærumhverfinu og ekki síst auðvelda fólki að bæta nauðsynlegum næringarefnum í sitt mataræði.

Vörulína Pure Natura samanstendur af fimm tegundum:

  • POWER
  • MEN
  • BALANCE
  • LIVER
  • DETOX

Allar vörurnar eru þróðaðar út frá nýjustu tækni og næringarvísindum og byggja á aldagamalli visku um næringarmátt innmatar. Óspillt íslensk náttúra tryggir gæðin en íslensku lömbin ráfa frjáls í náttúrinni allt sitt líf og jurtirnar sem notaðar eru í vörurnar finnast flestar villtar, langt frá mengun borgar og bæja. Vörurnar eru í endurvinnanlegum umbúðum og einnig er hægt að kaupa áfyllingu á dósirnar.

Vörurnar eru meðal annars fáanlegar í verslunum Hagkaupa og Krónunnar og síðan er frí heimsending í boði á öllum pöntunum yfir 10.000 krónur gegnum purenatura.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×