Makamál

„Ef hann er ekki til í að deila mat er hann ekki sá rétti“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hin fjölhæfa og orkmikla athafnakona Tobba Marínós er ekki þekkt fyrir annað en að fylgja eftir sínum draumum en á dögunum opnaði hún ásamt fjölskyldunni Granólabarinn úti á Granda. 
Hin fjölhæfa og orkmikla athafnakona Tobba Marínós er ekki þekkt fyrir annað en að fylgja eftir sínum draumum en á dögunum opnaði hún ásamt fjölskyldunni Granólabarinn úti á Granda. 

Hún heitir því stóra og virðulega nafni Þorbjörg Alda Birkis Marínósdóttir, en flestir þekkja hana sem hina glaðlyndu, vösku og hláturmildu Tobbu Marínós.

Tobba hefur komið víða við á sínum ferli en eftir að hafa starfað í ár sem ritstjóri DV ákvað hún að láta langþráðan draum rætast og reyna fyrir sér í veitingageiranum. 

Matargerð og heilsa hefur alltaf verið ástríða Tobbu en eftir að hafa verið í nokkur ár að framleiða hágæða matvöru undir merkinu, Nátt­úru­lega gott, ákvað hún að stíga skrefinu lengra og opna Granólabarinn í verbúðunum úti á Granda. 

Granólabarinn opnaði úti á Granda fyrir nokkrum vikum síðan en þar stendur Tobba sjálf vaktina og framreiðir dýrindis djúsa og litríkar ofurfæðisskálar með bros á vör. 

Það getur verið mikil vinna og álag sem fylgir því að fara út í eiginn rekstur en einnig mikil gleði.

Það er mikið stuð þessa dagana. Partýkúlur, engifer skot og gúmmúlaði alla daga.

Tobba er gift tónlistarmanninum og tölvunnarfræðingnum Karli Sigurðssyni og hafa þau verið saman í ellefu ár. 

Parið gifti sig á Ítalíu árið 2019 þann 19. september svo að í dag fagna þau ástinni og tveggja ára brúðkaupsafmæli.

Hér fyrir neðan svarar Tobba spurningum í viðtalsliðnum Ást er


Manstu eftir fyrstu máltíðinni ykkar saman? Ó já. Pizza á veitingastaðnum Hornið.

Hvort ykkar eldar meira? Ég en hann gengur frá, sem er fullkomið að mínu mati.

Tobba og Karl létu pússa sig saman á Ítalíu árið 2019 umvafin þeirri matarmenningu sem þau bæði elska.

Á hvaða staði fariði þegar þið viljið fara saman rómantískt út að borða? Coocoo's Nest í taco eða röltum um miðbæinn og tökum einn rétt á nokkrum stöðum. 

Lamb og hveitikökur á Fjallkonunni er stórkostlega gott, borgarar á Yuzu, bröns á Kopar eða sushi á Fiskmarkaðnum. 

Úrvalið í miðborginni er dásamlegt. Svo er huggó að fá sér drykk, spila og hlusta á jazz á Skuggabaldri eftir kvöldverð á Apótekinu eða Duck and Rose.

Eruð þið yfirleitt sammála um hvað eigi að vera í matinn? Nei. Steik eða steikarsalat.

Eitthvað sem þú elskar að borða en hann borðar ekki? Nei. Við erum merkilega samstíga. Hann er samt skeptískur á aspas og ananas.

Falleg fjölskylda á brúðkaupsdaginn. Tobba og Karl eiga saman tvær dætur.

Hvaða matur sem þú gerir er uppáhaldsmaturinn hans og/eða öfugt? Kalli er frábær á grillinu og gerir æðisleg egg. Hann elskar allt ítalskt og elskar þegar ég geri lasagnia og canneloni.

Getur þú gefið fólki einhverjar ráðleggingar varðandi stefnumót og mat? Já, pantaðu það sem þig langar í ef þið farið út að borða en ekki það sem þér finnst smart að panta. Og ef hann er ekki til í að deila mat er hann ekki sá rétti.

Hversu mikilvægt finnst þér að taka sér tíma til að setjast niður og borða saman sem par? Mjög mikilvægt. Einu sinni í viku borðum við tvö saman eftir að dætur okkar eru stofnaðar. Eldum saman, spjöllum, fáum okkur rauðvínsglas og njótum þess að vera saman.

Einhver ráð eða uppskrift sem þú vilt deila af skemmtilegum stefnumótamat mat? Stefnumótamatur á að vera áreynslulaus og alls ekki sóðalegur. Það er hræðilegt að vera allur í sósu eða með eitthvað fast á milli tannanna.


Canneloni uppskrift Tobbu

  • 1 pakki fersk­ar lasagna-plöt­ur
  • 300 g kota­sæla
  • 200 g rjóma­ost­ur (phila­delp­hia eða þessi blái frá MS)
  • 200 g spínat
  • 300 g eldaður kjúk­ling­ur – kryddaður með kjúk­lingakryddi t.d. frá Potta­göldr­um
  • 3 hvít­lauksrif
  • 1 lauk­ur
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 1 búnt fersk basilíka, söxuð
  • Góð pastasósa – heima­gerð eða 1 stór krukka keypt (um 400 g)
  • 2 dl rif­inn par­mes­an-ost­ur
  • salt
  • pip­ar
Canneloni að hætti Tobbu, gjöriði svo vel. 

Aðferð

  • Steikið lauk­inn og hvít­lauk­inn upp úr olíu. Þegar hann er orðinn mjúk­ur er spínatinu bætt við og það steikt uns mjúkt. Þá fer rjóma­ost­ur­inn, kota­sæl­an og helm­ing­ur­inn af basilík­unni sam­an við. Látið þetta bráðna var­lega sam­an og malla í um 5 mín. Saltið og piprið eft­ir smekk. Rífið þá kjúk­ling­inn út í.
  • Setjið olíu í botn­inn á eld­föstu móti. Skerið lasagna-plöt­una (kem­ur í einu heilu lagi) í jafna búta. Setjið fyll­ing­una í miðjuna á hverj­um bút og rúllið upp, svo úr verður pastarör. Látið skil­in snúa niður. End­ur­takið uns fyll­ing­in er bú­inn. Hellið pasta sós­unni yfir og toppið með par­mes­an. Bakið við 180 gráður í 20 mín­út­ur eða uns ost­ur­inn er tek­inn að gyll­ast og pastað orðið vel heitt í gegn. Stráið rest­inni af basilík­unni yfir áður en borið er fram.
  • Berið fram með góðu sal­atið og ít­ölsku rauðvíni sé stemm­ing­in þannig. Einnig er gott að setja pip­arkvörn á borðið svo fólk geti krydda meira.

Það er nú ekki annað en við hæfi að enda þetta á laginu I Got You Babe sem er lag Tobbu og Kalla og var spilað í brúðkaupi þeirra fyrir tveimur árum síðan. 

Makamál óska þeim hjónum innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið. 


Tengdar fréttir

Erum eins og haltur leiðir blindan í eldhúsinu

„Það er aldrei lognmolla á okkar heimili en við erum með fjögur börn svo það er ýmislegt skemmtilegt framundan,“ segir fagurkerinn og athafnakonan Marín Manda Magnúsdóttir í viðtali við Makamál.

Ömmumaturinn, ástríðan og sushi-draumurinn

„Laugardagar voru í miklu uppáhaldi því þá var hakk og spaghetti. Amma gerði líka alltaf kartöflumús með rosalega mikið af sykri. Það var ekkert eðlilega gott,“ segir matreiðslumeistarinn Axel Björn Clausen í viðtalsliðnum Matarást. 

Magga Bjarna deilir girnilegri ættaruppskrift í páskabúning

„Ætli þetta hafi ekki byrjað á því að ég elska að borða góðan mat, síðan kom forvitnin að læra að elda hann. Mamma mín er algjör snillingur í eldhúsinu svo að það er yfirleitt eldaður dásamlegur matur frá grunni heima. Svo að mamma hefur smitað mig af þessum mataráhuga,“ segir Margrét Bjarnadóttir í viðtalið við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×