Lífið

Stjörnulífið: Flutningar, ferðalög og djammið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það var nóg að gerast hjá Íslendingum þessa vikuna.
Það var nóg að gerast hjá Íslendingum þessa vikuna. Samsett/Instagram

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. 

Fjöla Sigurðardóttir kveður hlaðvarpið Eigin konur sem hún hefur haldið úti ásamt Eddu Falak síðustu mánuði. Hún gefur ekki upp ástæðu fyrir þessari ákvörðun en segist þakklát fyrir hlutstendur. 

„Ég vil að við höldum áfram að trúa, á okkur sjálf og fólkið í kringum okkur Ég mun aldrei hætta að trúa.“

Ása Regins og Emil Alfreðs fóru í brúðkaup. 

„Fyrsta brúðkaupið síðan 1700 og súrkál. Ég fór því aldeilis í rauða pinnahæla og bleikan kjól.“

Nökkvi Fjalar, Arnar Gauti og Arnar Gauti (LIL CURLY) eru búnir að kaupa sér flugmiða til London, aðra leið. Þeir eru að flytja út á vegum Swipe og ætla sér að vinna með áhrifavöldum þar úti. 

Erna Hrund nýtur þess að drekka einn til tvo kaffibolla á dag á meðgöngunni. 

Selma Björns, Salka Sól og Björk Jakobsdóttir frumsýndu Bíddu bara í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði  um helgina fyrir fullu húsi. Uppselt er á allar fyrstu sýningarnar en verkið þeirra er að fá mjög góðar viðtökur.

Lína Birgitta skellti sér út á lífið um helgina með Sólrúnu Diego og fleiri góðum vinkonum.

Eiður Smári birti af sér nýja sjálfsmynd og skrifaði einfaldlega við hana:

Þolinmæði 

Sunneva Einars fór út að borða um helgina. 

Erna Kristín er þakklát fyrir stjúpmóðurhlutverkið. 

Binni Glee fagnaði 22 ára afmælinu sínu. Hann frumsýndi líka fyrsta þáttinn af Æði 3 fyrir helgi svo þetta var stór vika hjá samfélagsmiðlastjörnunni. 

Katrín Tanja lyftir á föstudögum. Crossfit stjarnan okkar hefur sennilega aldrei verið í betra formi.

Vilborg Arna er á Grænlandi.

Birna María Másdóttir skoðaði Grænahrygg, vinsælasta ferðamannastaðinn á meðal Íslendinga þetta árið.

Fanney Ingvars er á heimleið eftir tvær góðar vikur á Tenerife með fjölskyldunni.

Þórunn Antonía fór út á lífið með vinkonum sínum um helgina.

Auðunn Blöndal birti fallega feðgamynd. Hann var ánægður með United leikinn um helgina.

Friðrik Ómars nýtur lífsins í Barcelona þessa stundina.

Magnea Björg er líka á Spáni og er dugleg að birta myndir frá ferðinni á Instagram.

Eliza Reed tók þátt í hlaupi um helgina. 

Helgi Ómarsson fékk foreldra sína í heimsókn um helgina.

Gummi kíró tekur sér aldrei frídaga frá ræktinni.

Sonur rapparans Herra Hnetusmjör er byrjaður á leikskóla.

Plötusnúðurinn Dóra Júlía hélt upp á 29 ára afmælið sitt um helgina. 

Baldvin Z birtir fleiri myndir frá gerð þáttanna Svörtu sandar.

Þórdís Björk er á Akureyri en hún starfar þar hjá Leikfélagi Akureyrar.

Svala Björgvins fór í myndatöku hjá Sögu Sig. 

Camilla Rut og eiginmaður hennar Rafn birtu myndband af tónlistarstund heima. 


Tengdar fréttir

Rómeó og Júlía í mótun fram á lokastundu fyrir frumsýningu

Um helgina var frumsýnt verkið Rómeó og Júlía í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Um er að ræða einstaka uppsetningu á þessu fræga verki og nær Þorleifur algjörlega að setja sinn svip á sýninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×